© 2026 Tix Miðasala
Tónabíó
•
5. nóvember
Miðaverð frá
7.900 kr.




Söngleikar er nýr viðburður í Tónabíó sem sameinar risakaraoke, söngþrautir, lagaleiki og samsöng salarins í einn stórskemmtilegan bræðing.
Til leiks mæta tvö einvala lið sem þurfa að leysa ýmsar söngþrautir og tónlistaráskoranir með hljómsveit kvöldsins sér til halds og trausts. Þau Sandra Barilli og Jóhann Alfreð stýra leikunum og halda uppi fjörinu ásamt bandinu.
Bandið skipa þau Tómas Jónsson, Magnús Trygvason Eliassen, Ingibjörg Turchi og Ómar Guðjónsson.
Gestir í salnum eru svo miklu meira en bara áhorfendur. Þau geta sungið með, hjálpað keppendum við þrautirnar, dæmt um frammistöður, kosið um hvaða lög verða sungin og margt fleira.
Á Söngleikum getur allt gerst og á einhverjum tímapunkti stígur svo leynigestur kvöldsins á svið. Einstök skemmtun fyrir vinahópinn, söngþyrsta stuðpinna og alla karaoke-elskendur þessa lands.
Að sýningu lokinni breytist Tónabíó svo í sannkallaðan karaoke-klúbb þar sem gestir geta sungið inn í nóttina á öllum hæðum.

