© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
15. nóvember
Miðaverð frá
0 kr.




List getur hreyft við okkur, sameinað fólk og eflt samstöðu. Í Hörpu mætast tónlist, gjörningur og mannréttindabarátta á sérstöku kvöldi þar sem listin verður að aflvaka samtakamáttar.
Íslandsdeild Amnesty International býður til viðburðarins Sláum taktinn – Listræn samstaða þar sem Þitt nafn bjargar lífi verður formlega ýtt úr vör. Þitt nafn bjargar lífi er stærsta árlega mannréttindaherferð Amnesty International og fagnar 25 ára afmæli í ár. Af því tilefni kemur fjölbreyttur hópur listafólks fram á viðburðinum.
Heiðursgestur kvöldsins er Aleksandra Skochilenko (Sasha) frá Rússlandi, sem þekkir af eigin raun þann kraft sem felst í alþjóðlegri samstöðu. Sasha var handtekin í apríl 2022 eftir að hún skipti út verðmiðum í matvöruverslun í Sankti Pétursborg fyrir miða með upplýsingum um innrás Rússlands í Úkraínu. Hún var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir friðsamleg mótmæli sín í nóvember 2023. Mál Söshu var hluti af Þitt nafn bjargar lífi árið 2022 og fólk um allan heim tók þátt í aðgerðum til að krefjast frelsis hennar. Hún fékk frelsi á ný í ágúst 2024.
Fjölbreyttur hópur listafólks kemur fram. Kórar sönghússins Domus Vox, undir stjórn Margrétar Jóhönnu Pálmadóttur og Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur, flytja vel valin lög. Hljómsveitin Tár, skipuð þeim Elínu Eyþórsdóttur og Zöe Ruth Erwin, flytur sín eigin lög. Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson koma fram saman og að lokum flytja Jóhannes Stefán, Guðrún Bjarnadóttir og Eyja Ragnheiðardóttir saman tónlist.
Listakonan Diana Burkot úr hljómsveitinni Pussy Riot verður jafnframt með sérstakan gjörning sem hún hefur skapað fyrir herferðina og þróast meðan á viðburðinum stendur.
Gestir verða ekki aðeins áhorfendur. Þeir fá einnig tækifæri til að leggja sitt af mörkum og skrifa undir mál til stuðnings einstaklingum í Þitt nafn bjargar lífi sem sæta alvarlegum mannréttindabrotum víða um heim.
Í 25 ár hefur Þitt nafn bjargar lífi sýnt hvað getur gerst þegar einstaklingar um allan heim taka höndum saman. Milljónir hafa lagt nafn sitt við baráttuna gegn óréttlæti og þessi samtakamáttur hefur stuðlað að því að fólk hefur fengið frelsi sitt á ný og óréttlátum lögum verið breytt.
Gult hjarta er táknmynd herferðarinnar í ár. Hvert nafn er hjartsláttur samstöðu. Eitt og sér kann það að virðast lítið, en þegar þúsundir og milljónir einstaklinga leggja saman krafta sína verður til taktur samstöðunnar – taktur sem erfitt er að hunsa. Í tilefni opnunarinnar verður gulu hjarta varpað á framhlið Hörpu – sjónræn birtingarmynd samtakamáttarins sem verður til þegar ótal einstaklingar leggja saman krafta sína í þágu mannréttinda.
Látum samstöðuna hljóma.
Sláum taktinn. Skrifum undir.
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Gestum verður boðið upp á léttar veitingar.

