Elly Vilhjálms, stórtónleikar milli jóla og nýárs

Harpa

•

27. - 28. desember

Sala hefst

2. október 2026, 08:00

(eftir 4 daga)

Henný Eldey Vilhjálmsdóttir, sem þjóðin þekkti sem Elly Vilhjálms, skildi eftir sig einstakan tónlistararf. Rödd hennar lifir enn og lögin sem hún söng eru fyrir löngu orðin hluti af þjóðarsál Íslendinga. 

Vesturport kynnir stórtónleika til heiðurs þessari dáðu söngkonu í Eldborgarsal Hörpu þann 27. desember kl. 16:00 og 20:00. Tónleikarnir voru fyrst fluttir árið 2025 á 90. afmælisári Ellyar og seldust þá upp á örskömmum tíma. Nú gefst kostur á að upplifa tónlist Ellyar á ný, í endurbættri og aukinni dagskrá og enn veglegri uppsetningu. 

Söngkonan Katrín Halldóra flytur helstu perlur úr söngferli Ellyar ásamt góðum gestum og stórhljómsveit Guðmundar Óskars Guðmundssonar en Hjörtur Ingvi Jóhannsson sér um nýjar útsetningar á lögunum. Gísli Örn og Ólafur Egill verða sögumenn tónleikanna og rekja feril Ellyjar á lifandi og skemmtilegan hátt. Hér er því einstakt tækifæri til að heyra lög Ellyjar á ný og minnast söngkonunnar sem ljáði íslenskri dægurtónlist einstaka rödd sína og túlkun. 

Elly Vilhjálms 
Elly fæddist árið 1935 í Merkinesi við Hafnir, hún var í senn hæglát suðurnesjastúlka og heimskona, feimin og hlédræg en jafnframt röggsöm og ákveðin. Það var þó fyrst og fremst hin einstaka rödd hennar og næma söngtúlkun sem gerði hana að einni eftirminnilegustu söngkonu þjóðarinnar. Þegar Elly hóf söngferil sinn lögðu danshljómsveitir gjarnan fyrst og fremst áherslu á hljóðfæraleik og söngvarar voru oft fremur til skrauts en sjálfstæðir listamenn. Fyrir söngkonur var starfsumhverfið jafnvel enn erfiðara. Ferill þeirra var oftast nær stuttur, lauk yfirleitt við giftingu þegar samfélagsviðmið gerðu ráð fyrir að þær snéru sér að heimilisstörfum og barnauppeldi. Elly lét þó ekki þær væntingar ráða för. Hún gekk í hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar, fyrsta eiginmanns síns, og eftir skilnað þeirra söng hún um árabil með KK-sextett. Síðar söng hún með hljómsveit Jóns Páls Eyjólfssonar, sem var annar eiginmaður hennar, við fádæma vinsældir. Það liðu sjö ár frá því að Elly steig fyrst fram á sjónarsviðið þar til hún söng inn á sína fyrstu hljómplötu. Hún hafði sjálf lengi óttast að rödd hennar myndi „hljóma hræðilega“ á upptökum. Sú óvissa átti þó eftir að reynast óþörf, enda gerði söngur hennar á laginu „Vegir liggja til allra átta“ úr kvikmyndinni 79 af stöðinni hana að landsþekktri söngstjörnu. Skömmu síðar gekk Elly til liðs við eina þekktustu hljómsveit landsins og giftist í þriðja sinn, nú hljómsveitarstjóranum Svavari Gests. Saman byggðu þau upp öflugt tónlistar- og útgáfustarf og stóðu að SG hljómplötum, einu umsvifamesta hljómplötuútgáfufyrirtæki landsins á sínum tíma. Þar hófst nýr kafli á ferli Ellyjar sem hætti að syngja á böllum og söng aðeins inn á hljómplötur, meðal annars með yngsta bróður sínum, Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Ferill Ellyjar var þó enginn dans á rósum. Á þessum árum voru söngkonur ýmist dýrkaðar eða fordæmdar, stundum bæði í senn. Gróusögur og fordómar fylgdu starfinu og Elly þurfti oft að þola dómhörku og rætið umtal sem karlkyns starfsbræður hennar mættu síður. Sömuleiðis þurftu hún að hafa meira fyrir því að koma fram en karlarnir. Gerðar voru miklar kröfur um útlit og framkomu kvenna á þessum árum og kostnaðurinn við “kjólaútgerð” Ellyar var umtalsverður. Á sama tíma gátu karlkyns söngvarar oft notað sömu ball-gallana árum saman. Flestar íslenskar söngkonur voru jafnframt í fullu starfi á daginn, og/eða sinntu heimili og fjölskyldu og söngnum þess á milli og það sama gilti um Elly. Þrátt fyrir velgengnina dró hún sig að lokum alfarið úr sviðsljósinu. Í nær tuttugu ár söng hún ekki opinberlega, og lítið sem ekkert inn á plötur og talaði lítið um fyrri feril sinn. Hún ræddi hann jafnvel ekki við tvo yngstu syni sína, sem gerðu sér lengi framan af enga grein fyrir því að móðir þeirra hefði eitt sinn verið ein þekktasta söngkona landsins, enda hafði hún þann sið að þegar lög hennar bárust úr útvarpinu á heimilinu slökkti hún einfaldlega á tækinu. Þegar rokkið hélt innreið sína fjaraði undan SG hljómplötum og fyrirtækið varð loks gjaldþrota. Elly snéri sér þá aftur að söngnum og var meðal annars ein aðalstjarnan á stórtónleikum KK sextett á Hótel Íslandi 1987 sem vöktu gríðarlega athygli og endurvöktu áhuga fólks á ferli hennar og sönglist. En endurkoman varð skammvinn því Elly veiktist skömmu síðar af krabbameini og lést 16. nóvember 1995, aðeins 59 ára gömul.   

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger