© 2026 Tix Miðasala
Grafarvogskirkja
•
12. nóvember
Miðaverð frá
7.500 kr.




Stórtónleikar Fjörgynjar – stuðningur við BUGL
Þetta er í 22 sinn sem Lionsklúbburinn Fjörgyn stendur fyrir tónleikum til styrktar verkefna líknarsjóðs Fjörgynjar.
Fyrstu styrktartónleikar Fjörgynjar voru haldnir árið 2003 og á hverju ári síðan hefur fjöldi landskunnra tónlistarmanna ávallt gefið vinnu sína til verkefnisins.
Nú í ár munu eftirfarandi tónlistarfólk koma fram:
Rebekka Blöndal
Páll Óskar
Gissur Páll Gissurarson
Dísella Lárusdóttir
KK (Kristján Kristjánsson)
Mugison
Herbert Guðmundsson
Guðmundur Herbertsson
Gunnar Helgason
Aþena Rut Friðriksdóttir
Undirleikarar: Lára Bryndís Eggertsdóttir, Steingrímur Teague, Ásgeir Ásgeirsson, Pálmi Sigurhjartarson.
Kynnir er hinn landsþekkti Felix Bergsson.
Fjörgyn leggur ríka áherslu á að beita sér fyrir velferð barna og unglinga. Í gegnum tíðina hefur klúbburinn stutt margvísleg verkefni, fyrir samtals um 270 milljónir á núvirði. M.a. hefur Fjörgyn fyrst og fremst stutt við Barnaspítala Hringsins og Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). Fjölmargir aðrir aðilar hafa einnig notið stuðnings frá klúbbnum, m.a. Ungmennafélagið Fjölnir, Ljósið, Skátafélagið Vogabúar, Ungmennastarf í Grafarvogi, Stuðlar, Sólheimar, SPOEX, Umhyggja, Styrktarfélagið Broskallar (broskallar.is) o.fl.
Frá stofnun klúbbsins hefur Fjörgyn einnig gefið matargjafir eða innkaupakort til þurfandi fjölskyldna í Grafarvogi í samstarfi við Grafarvogkirkju og Íslensku Kristskirkjuna.
Án stuðnings fjölmargra aðila þar á meðal ykkar sem sækið tónleikana væri þetta ekki mögulegt.

