© 2026 Tix Miðasala
Listasafn Reykjavíkur
•
12. nóvember
Miðaverð frá
3.900 kr.




Hrygg
Hryggr er ljóðrænt verk sem höfðar til allra skynfæra; þar sem líkami mætir hafi og mörk manneskjunnar, náttúrunnar og fantasíunnar leysast smám saman upp.
Með hreyfingu tekur líkaminn hægt og rólega á sig nýtt form; þannig opnast rými fyrir annars konar myndir, hrynjandi og orku. Líkami, hljóð og rými renna saman í einn heim þar sem flakkað er á milli þess áþreifanleika og þess draumkennda, á milli raunveruleika og ímyndunar. Áhorfendum býðst að hugleiða sín eigin tengsl við hafið, við náttúruna og hið óþekkta.
Titillinn Hryggr hefur tvöfalda merkingu; sem nafnorð og sem sagnorð. Orðið getur skírskotað til Mið-Atlantshafshryggjarins, sem úr geimnum líkist gríðarstórri hryggjarsúlu sem þræðir sig gegnum hafið, en einnig til sorgarinnar sem vaknar við náttúrueyðingu okkar tíma.
Verkið er samið af danshöfundinum Báru Sigfúsdóttur í samstarfi við tónskáldið Eivind Lønning og listakonuna Andreu Kränzlin sem býr og starfar í Antwerp.
Kóreografía, fytjandi & listræn stjórnun: Bára Sigfúsdóttir
Tónskáld & lifandi flutningur tónlistar: Eivind Lønning
Sviðsmynd & búningar: Andrea Kränzlin
Ljósahönnun: Shiva Sherveh
Utanaðkomandi auga: Sara Vanderieck, Birgit Berndt, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Margrét Bjarnadóttir & Orfee Schuijt.
Styrkt af: Henie Onstad Kunstsenter, CODA Oslo International Dance Festival, Bærum Kulturhus, Kulturdirektoratet Scenekunst – danseproduksjoner, Kulturdirektoratet, Norsk-Islandsk Kultursamarbeid, FFUK, Reykjavik Dance Atelier, Praxis Oslo.
Þakkir til: Espen Reinertsen and Tony Tran
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á

