© 2026 Tix Miðasala
Gullhamrar
•
7. október
Miðaverð frá
9.900 kr.




Reykjavík Flight Safety Symposium
Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna stendur fyrir ráðstefnunni ,,Reykjavik Flight Safety Symposium” í tíunda sinn fimmtudaginn 8. október 2026 í Gullhömrum.
Markmið ráðstefnunnar er að miðla fróðleik og skapa vettvang fyrir umræðu um þau málefni sem varða flugiðnaðinn á hverjum tíma. Ráðstefnan dregur til sín fjölbreyttan hóp úr flugiðnaðinum. Þátttaka síðustu ár hefur farið fram úr björtustu væntingum og ljóst að umfjöllunarefnið höfðar til fjölbreytts áheyrendahóps, m.a. flugumferðarstjóra, flugfreyju og -þjóna, flugvirkja, flugmanna og aðila úr stjórnsýslunni.
Viðfangsefnin eru fjölbreytt í samræmi við anda ráðstefnunnar en staðfestir fyrirlesarar eru:
Öryggisógnir Air Atlanta
Þreyta og streita. Geðheilsan í fyrsta sæti
Diversion dagurinn 26. febrúar: Pallborðsumræður
Eldsneytisbestun og öryggi
Leit og björgun hjá Landhelgisgæslu Íslands
Drónar: kynning frá Ríkislögreglustjóra, Avians og Samgöngustofu
Aðgangseyririnn er 9.900 krónur. Hádegishlaðborð og léttar veigar á ráðstefnunni er innifalið í verðinu.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna: www.fia.is

