© 2026 Tix Miðasala
•
2. október
Miðaverð frá
4.000 kr.




Rebetíka í Djúpinu
Οι ελήτες eða Flækingjarnir leika rebetíka tónlist sem er þjóðartónlist Grikkja frá síðustu öld. Þetta eru lögin sem urðu til í skuggalegu athvarfi fátækra innflytjenda, uppgjafa hermanna og annarra sem gæfan hafði snúið baki við á umbrotsárum á fyrri hluta síðustu aldar. Dansgólf er fyrir framan hljómsveit svo líklegt má teljast að Grikkir og vinir grískrar tónlistar stígi dans þó takturinn geti verið frá hægum zeibekikó yfir í tyrkneskan magadans takt.
Tónskáld sem koma við sögu eru: Markos Vambakaris, Vasílis Tsitsanis, Georg Zambetas, Anestos Delias og fleiri.
Flækingjarnir eru þeir: Ásgeir Á, búzúkí, Jón Sig, gítar, söngur og slagverk, Kristos, baglama, gítar og söngur, Misha, búzúki og söngur og Platónas sem leikur á tzúra og syngur.

