Útsynningur

Freyvangur

9. - 31. október

Miðaverð frá

3.500 kr.

  Útsynningur  

  

  Er útsynningur í búningsklefanum?   

Verkið gerist í rauntíma og fjallar um leikhóp í áhugaleikfélagi út á landi sem er að setja upp leikritið Cloud nine eftir carroll Churchill. Við fáum ekki að sjá það leikrit heldur fáum við að fylgjast með leikurunum í búningsklefanum, þar sem þeir eru þegar þeir eru ekki á sviði. verkið gerist því eingöngu í búningsklefanum og er ýmislegt sem gerist milli leikara þegar þeir eru ekki á sviði.

Mæta allir leikarar á réttum tíma til að fara á svið? Finnur sýningarstjórinn meiri klósettpappír? Hvað er málið með Geirmund húsvörð?  Gleði, rifrildi, vinátta og ástir. Misgóð lykt, hávaði, drasl og misgott skipulag. Áhugaleikarar eru misjafnir eins og þeir eru margir og því fróðlegt að sjá hvað gerist þegar hóp af fólki er troðið saman í lítið rými og það neyðast til að vinna saman. Og svo getur líka alveg riðlað dýnamikinni þegar einhver sem er ekki partur af hópnum birtist og vill fara að stjórnast í hvernig hlutunum er háttað.

Útsynningur er frumsaminn gamanleikur eftir Hjálmar Arinbjarnarson, og er leikstjóri Jóhanna S. Ingólfsdóttir.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger