IN CAELO ET IN TERRA

Hallgrímskirkja

25. október

Sala hefst

2. október 2026, 10:00

(eftir 3 vikur)

Kór Hallgrímskirkju býður til tónleika í tilefni af útkomu fyrstu breiðskífu kórsins með nýrri íslenskri kirkjutónlist, In caelo et in terra. Diskurinn er gefinn út af Hallgrímskirkju á 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar og 5 ára afmæli Kórs Hallgrímskirkju.


Kór Hallgrímskirkju hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á nýsköpun og voru öll verkin á plötunni pöntuð og frumflutt af kórnum. Þau eru samin við kirkjulega texta á latínu, texta sem eiga sér langa sögu og hafa verið túlkaðir á ótal vegu í tónum. Hér fá tónskáld samtímans tækifæri til að nálgast þessa texta frá nýju sjónarhorni og skapa eigin hljóðheim í kringum orð sem hafa fylgt kirkjunni um aldir.


Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Diskurinn verður til sölu í forkirkjunni fyrir og eftir tónleikana og jafnframt verður tekið á móti frjálsum framlögum í kórsjóð.


Flytjendur:


Kór Hallgrímskirkju

Steinar Logi Helgason, stjórnandi

Björn Steinar Sólbergsson, orgel

Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran

Sólbjörg Björnsdóttir, sópran


Efnisskrá:


Hosanna filio David – Finnur Karlsson

Ave Maria – Hugi Guðmundsson

Psalmus 116 – Hildigunnur Rúnarsdóttir

Veni Sancte spiritus – Bára Grímsdóttir

Tu solus qui facis mirabilia – Þorvaldur Örn Davíðsson

Pater noster – Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir

Ave verum Corpus – Hjálmar H. Ragnarsson

Ave maris stella – Elín Gunnlaugsdóttir

Magnificat – Tryggvi M. Baldvinsson


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger