Teitur Magnússon : Askur – útgáfutónleikar

Tónabíó, Skipholt 33

3. október

Miðaverð frá

5.990 kr.

  Teitur Magnússon : Askur – útgáfutónleikar  

  Teitur Magnússon sendir frá sér nýja vínylplötu um þessar mundir er nefnist Askur og fagnar því með útgáfutónleikum í Tónabíó 3. október. Ekki missa af þessari einstöku uppskeruhátið - komdu fagnandi!

Öllu verður til tjaldað og breiðskífan flutt í heild sinni í fyrsta sinn auk ýmissa eldri slagara ásamt einvalaliði hljóðfæraleikara: Mýtlunum.

Þetta er fjórða sólóplata Teits síðan reggísveitin rómaða Ojba Rasta lagðist í dvala. Askur kemur í kjölfar: 27, Orna og 33 - en allar þrjár hafa hlotið: lof, prís og áheyrn fagurkera þessa lands. Á Aski heldur tónheimur Teits áfram að þróast í lífræna átt: Folk, Popp, Rokk og Tropicalia í bland við íslenska texta úr fortíð og nútíð. Þess ber að geta að upptökustjóri plötunnar, Hallberg Hallbergsson (Jakobínarína & Brian Jonestown Massacre), setti sterkan blæ á hljóm heildarverksins.

Lög af Aski hafa undanfarin misseri hljómað víða og fengið talsverða spilun. Má þar nefna lögin: Sjalið, Fegurð, Gullauga & Fjöllin og fjarlægðin sem rataði í fyrsta sæti Vinsældalista Rásar 2.

Upphitun/fordrykkur í anddyri kl. 20.
Dj. Simon Psychotic þeytir 7 tommum.

Tónleikar hefjast kl. 21
Teitur & Mýtlarnir flytja Ask og fleiri lög.

Miðaverð: 5.990 kr.

Mýtlarnir eru:
Birgir Ísleifur Gunnarsson (Motion Boys)
Orri Páll Dýrason (Sigur Rós)
Ingvi Rafn Björgvinsson (Oyama)
Hróðmar Sigurðsson
Arnar Birgisson

Sérstakir gesta Mýtlar:
Daníel Sigurðsson (Ojba Rasta)
Arnljótur Sigurðsson (Ojba Rasta)

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger