Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens

Harpa

•

22. - 23. desember

Miðaverð frá

6.990 kr.

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra.

Tónleikarnir í ár verða hefðbundnir. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikanna hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn, perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

  Uppselt er 23. desember – við bætum við einu kvöldi.

Bubbi snýr aftur í Eldborg og ætlar að loka mögnuðu afmælisári á stórum nótum þriðjudaginn 22. desember kl. 20:00.

Með honum verður stór hluti af hljómsveitinni sem stóð að baki 06.06 afmælistónleikunum – undir stjórn Halldórs Gunnars Fjallabróður. Það stefnir því í alvöru lokakvöld á ári sem hefur verið eitt það stærsta á ferli Bubba.

Eldborg. Stórt band. Bubbi. Eitt kvöld í viðbót.  

Almenn miðasala hefst mánudaginn 12. október kl. 10:00.

Hlökkum til að eiga þetta kvöld með ykkur.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger