A Country Night In Nashville

Harpa

•

12. febrúar

Miðaverð frá

6.990 kr.

Upplifðu iðandi kántrí stemningu beint frá Nashville í sannkallaðri veislu þar sem spiluð verða gömul og ný kántrí lög. 

Sýningin A Country Night in Nashville er ein vinsælasta kántrísýning í Evrópu og snýr hún nú aftur í Hörpu eftir uppselda tónleika árið 2025. Sýningin sló í gegn í Þýskalandi, í Royal Albert Hall í London og átti metsölu tónleikaferðalag um Bretland. 

Sex manna hljómsveitin Dominic Halpin & The Hurricanes færir kántrí stemninguna frá Nashville, höfuðborg kántrítónlistar í Bandaríkjunum, beint upp á sviðið í Hörpu. Flutt verða lög frá stærstu stjörnum kántrí heimsins, fortíðar og nútíðar eins og Dolly Parton, Johnny Cash, Shania Twain, Willie Nelson, Lady A, George Strait, Ella Langley og mörgum fleirum. 

Með sönnum kántríhljómi mun sveitin spila af mikilli færni og ástríðu slagara á borð við Ring of Fire, Crazy, 9 to 5 og The Gambler, í bland við nýrri smelli eins og Man! I Feel Like a Woman, Need You Now og Choosin’ Texas.

Tveir tímar af stærstu kántrísmellunum og hljómsveit sem býður upp á mikið stuð. 

Klassískt kántrí. Nýtt kántrí. Frábært kántrí. 

Miðbær Nashville beint á sviðið í Hörpu!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger