IV – Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju: Eyþór Ingi Jónsson, organisti

Hallgrímskirkja

5. september

Miðaverð frá

3.200 kr.

  IV  – Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju: Eyþór Ingi Jónsson, organisti  

  

Á efnisskrá eru fjögur verk eftir framúrskarandi íslensk tónskáld, öll af plötunni XV, auk fjögurra kafla úr hinu stórbrotna orgelverki Vater unser im Himmelreich eftir þýska snemmbarokktónskáldið Steigleder, sem samdi verkið árið 1626.


Flutt verða verk eftir Þorvald Örn Davíðsson, Báru Grímsdóttur, Sigurð Sævarsson og Atla Ingólfsson. Fjallið Herðubreið, krossinn, íslensk sönghefð og tengsl við eldri tónlist eru meðal þeirra hugmynda sem birtast í verkunum.


Talan fjögur er rauður þráður í efnisskránni, allt frá fjórum íslenskum verkum og fjórum köflum Steigleders til fjögurra hluta í nokkrum verkanna.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger