© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
11. október
Miðaverð frá
4.990 kr.




Sveitin BIT20 er sennilega óþekkasta barnið í norrænni samtímatónlist. Síðan sveitin var stofnuð í Bergen árið 1989 til að þyrla upp stemningu fyrir nýrri tónlist hafa þau ötullega pantað og frumflutt nýja tónlist eftir bæði heimsþekk og óþekk tónskáld, norsk og erlend og starfað með ófáum þungavigtaraðilanum í bransanum. Nú gera þau strandhögg í Kópavogi og koma fram á State of the Art, með Bjarna Frímann við stjórnvölinn. Bjarni fæddist sama ár og BIT20 og er nýlega skipaður listrænn stjórnandi þeirra. Síðan hann tók við hefur sveitin unnið hvern sigurinn á fætur öðrum, full hús af fólki og full hús hjá gagnrýnendum. Á sviðinu snúa bökum saman ungir tónlistarmenn og þrautreyndar kempur sem hafa klifrað yfir girðingar síðan 1989.
Á State of the Art býður BIT20 upp á hlaðin borð af norrænni samtímatónlist sem spannar allt frá sýlskarpri pling-plong músík til hins ófyrirséða. Það verður pönk-frumflutningur. Íslenskur útúrdúr. Atli Heimir mæti? Og svo að sjálfsögðu stykki sem sveitin pantaði og hefur gert ódauðleg. Og sumt er best að hafa ekki mörg orð fyrir tónleikana.
Óþreytandi ævintýragjarnir Norðmenn og okkar maður undir stýri. Láttu þig ekki vanta og komdu þér hjá því að þurfa að vera með afsakanir í jólaboðinu.

