© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
23. september
Miðaverð frá
4.900 kr.




John Coltrane var saxafónleikari, hljómsveitastjóri og tónskáld. Hann var einn virtasti og áhrifamesti jazztónlistarmaður tuttugustu aldarinnar en hann hefði orðið 100 ára gamall þann 23. september.
Á tónleikunum í Salnum ætlar Jazz kvartett Halla Guðmunds að heiðra John Coltrane á stórafmælinu með flutningi á nokkrum af merkustu verkum hans sem og efni sem kvartettinn hefur samið til heiðurs honum.
Á tónleikunum koma fram tveir merkilegir gestir, annars vegar gítarleikarinn Hilmar Jensson, sem hefur lengi verið í framlínu íslenskra jazz gítarleikara og Snorri Sigurðarson á trompet en Snorri er einn af okkar fremstu trompetleikurum með víðtæka reynslu hérlendis sem erlendis.
---
Halli Gudmunds Jazz Quartett var stofnaður árið 2019 fyrir útgáfu plötunnar "Monk Keys", en með þeirri plötu setti kvartettinn hljóðheim klassíska jazzsins niður með rótum og byggði platan á hljóðheim Monk, Coltrane og Sonny Rollins.
Í ár kemur út önnur plata kvartettsins, "At his House", og er sérstaklega tileinkuð saxófónleikaranum John Coltrane. En hann bjó yfir yfirburðatækni á hljóðfæri sitt en einnig náði hann að snerta dýpstu sálarstrengi með hljóðfæraleik sínum og orku.
Kvartettinn:
Haraldur Ægir Guðmundsson, kontrabassi
Steinar Sigurðarson, tenor/sopran sax
Daði Birgisson, piano
Óskar Kjartansson, trommur
Gestir:
Hilmar Jensson, rafgítar
Snorri Sigurðarson, trompet

