© 2026 Tix Miðasala
Hlégarður
•
27. ágúst
Miðaverð frá
6.490 kr.




Feita hjartað - uppistand með Dóra DNA Í túninu heima
,,Enginn annar Dóri DNA en ætlar að skemmta Mosfellingum á bæjarhátíðinni Í túninu heima! Feita hjartað er glæný gamansýning frá einum ástsælasta ástmegi þjóðarinnar og sú fyrsta síðan sýningin Engar takmarkanir gekk fyrir fullu húsi um allt land árið 2023. Sýningin hefur jafnframt verið sýnd fyrir fullu húsi í vetur. Maðurinn sem einnig hefur verið nefndur Gene Hackman sinnar kynslóðar, maðurinn sem er bæði barnabarn og nafni nóbelsskáldsins, sjónvarpsmaðurinn, hinn íslenski Colonel Sanders, rapparinn, leikarinn, skáldið, höfundurinn og nautnaseggurinn hefur fyrir löngu sigrað þjóðina og gerir fátt betur en að koma fólki til að hlæja.
Í sýningunni Feita hjartað kafar Dóri ofan í kviku tilverunnar og skoðar sjálfan sig að innan. Þar er margt að finna sem gaman er að segja frá og enn meira gaman að hlusta á.
Sýningin er stranglega bönnuð innan 16 ára
Við hlökkum til að sjá sem flesta. Tryggið ykkur miða!"

