Kvöldstund með Max Porter

Tjarnarbíó

3. október

Miðaverð frá

1.500 kr.

Max Porter er án efa einn af mest spennandi höfundum breskra samtímabókmennta. Honum skaut upp á stjörnuhimininn árið 2015 með nóvellunni Grief is the Thing with Feathers, ljóðrænni og nýstárlegri sögu um missi, sorg og föðurhlutverkið. Bókin hlaut fjölda verðlauna, var sett á svið og loks kvikmynduð árið 2025 með Benedict Cumberbatch í aðalhlutverki. Önnur verk Porters hafa einnig notið mikillar hylli, þar ber hæst skáldsögurnar Lanny og Shy, en eftir þeirri síðarnefndu var einnig gerð kvikmynd með Óskarsverðlaunahafanum Cillian Murphy í aðalhlutverki.

Íslendingum er í fersku minni nýlegt viðtal þar sem Cillian Murphy lofaði skáldsögu Halldórs Laxness, Sjálfstætt fólk, í hástert. Maðurinn sem þar sat við hlið hans var einmitt Max Porter, sem hafði gefið Murphy bókina.

Einn hápunkturinn á löngu og gjöfulu samstarfi þeirra er 25 mínútna einleikur sem Porter skrifaði sérstaklega fyrir Murphy, Allan þennan óraunverulega tíma. Verkið, sem bæði hefur verið sviðsett og kvikmyndað, er rússíbanareið um karlmennsku og angist, ætandi skömm, vítahring kynslóðanna – og vonina.

Laugardagskvöldið 3. október næstkomandi mun Max Porter sjálfur flytja þennan einleik í Tjarnarbíói undir spuna Skúla Sverrissonar bassaleikara og Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar píanóleikara.    

Með hverjum miða fylgir bók, íslensk þýðing Þórdísar Helgadóttur á einleiknum.

Að flutningi loknum munu rithöfundarnir Brynja Hjálmsdóttir, Þórdís Helgadóttir og Fríða Ísberg eiga í samtali við Max um sköpunarferlið, tilraunir í prósa og skáldskap.

Viðburðurinn er styrktur af Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Reykjavík Tónlistarborg.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger