Bandonegro & Bergljót Tango Project – Tónleikar og Milonga

Gamla Bíó

13. september

Miðaverð frá

7.600 kr.

  Bandonegro & Bergljot Tango Project – Tónleikar og Milonga

Tangófélagið býður til einstaks tangókvölds í Gamla Bíói sunnudaginn 13. september þar sem lifandi tónlist, tónleikar og milonga renna saman í eina heild. Gestir sitja við hringborð og njóta tónleikanna, en fyrir framan sviðið verður dansgólf þar sem hægt verður að dansa milongu allt kvöldið.

Fyrri hluti kvöldsins er helgaður Bergljot Tango Project, nýju og metnaðarfullu tónlistarverkefni Bergljótar Arnalds þar sem saman koma nokkrir af fremstu tónlistarmönnum Íslands. Sveitin sækir innblástur í argentínska tangóhefð en fléttar hana saman við íslensk áhrif, nýjar útsetningar og frumsamið efni. Útkoman er persónuleg og lifandi túlkun á tónlist þar sem tilfinning, samspil og sterk frásögn fá að njóta sín.

Bergljot Tango Project

Ásgeir Ásgeirsson - gítar, Bergljót Arnalds - söngur, Gunnar Hrafnsson - bassi, Karl Olgeirsson - píanó, Kjartan Valdemarsson - harmonikka, Pétur Björnsson - fiðla

Á milli tónleikasetta sér DJ um að halda dansgólfinu lifandi með klassískum tangó, vals og milongum.

Sérstakur gestur kvöldsins er Bandonegro frá Póllandi en hljómsveitin kemur nú fram á Íslandi í fyrsta sinn. Sveitin hefur skapað sér sterka stöðu á alþjóðlegum tangóvettvangi og er ein fremsta tangóhljómsveit Evrópu. Bandonegro er þekkt fyrir kraftmikinn flutning, einstakan hljóðfæraleik og ferska nálgun á argentínskan tangó sem höfðar jafnt til dansara sem tónleikagesta.

Bandonegro

Marek Wilczyński - kontrabassi, Michał Gajda - bandoneón, Michał Lech - píanó, Tomasz Waldowski - fiðla

Þetta verður kvöld þar sem íslensk sköpun og alþjóðleg tangóhefð mætast á sama sviði. Tveir ólíkir en samhljóma tónlistarheimar, tónleikar og milonga renna saman í einstaka upplifun þar sem áhorfendur og dansarar verða hluti af lifandi tangóstemningu í hjarta Gamla Bíós.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger