© 2026 Tix Miðasala
Sviðið, Selfossi
•
17. október
Sala hefst
7. ágúst 2026, 15:00
(eftir 2 klukkustundir)




Alvöru '80s partý – Movie Hits
Bestu bíómyndalög níunda áratugarins!
Hr. Eydís og Erna Hrönn bjóða nú upp á tónleikapartý þar sem stærstu kvikmyndasmellir '80s fá að njóta sín.
Á efnisskránni eru lögin sem hljómuðu í bíómyndunum og urðu meðal vinsælustu laga áratugarins.
Hvort sem þú manst eftir þeim úr bíóinu, af VHS-spólunum eða útvarpinu, þá eru þetta lög sem vekja upp minningar og fá flesta til að öskur syngja með.
Ef þú hefur áður séð Hr. Eydísi og Ernu Hrönn saman veistu við hverju má búast.
Hr. Eydís skipa Örlygur Smári, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason.
Tónleikarnir fara fram á Sviðinu á Selfossi laugardaginn 17. október.

