© 2026 Tix Miðasala
Fella- og Hólakirkja
•
22. ágúst
Miðaverð frá
4.000 kr.




Dætur Evu - systur Maríu
Flutt verða söngverk þar sem holdgerving Evu birtist annars vegar og holdgerving Maríu hins vegar, og þetta tvíeðli konunnar skoðað í gegnum ólíkar tónleikastefnur. Verkin eru fjölbreytt, ýmist frá seinni hluta 19. aldar, 20. öld eða miðöldum, og fyrir bæði kór og einsöng.
Sviðslistahópurinn Gjallandi var stofnaður sumarið 2025 og samanstendur af átta söngkonum sem vilja skapa sér og öðrum ungum listamönnum fjölbreytt verkefni á sviði sviðslista.
Söngkonurnar sem skipa Gjallanda að þessu sinni eru:
Anna Elísa Axelsdóttir
Anne Keil
Ásta Sigríður Arnardóttir
Bryndís Ásta Magnúsdóttir
Margrét Björk Daðadóttir
Ragnheiður Petra Óladóttir
Snjólaug Vera Jóhannsdóttir
Steinunn María Þormar
Píanóleikari er Ólína Ákadóttir
Nánar um tónleikana má lesa hér: https://www.1515.is/atburdir/daetur-evu-systur-mariu
Almennt miðaverð er 4000 kr. en er 3000 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn. Frítt er fyrir unglinga og börn.

