Upprásin | Skaði Þórðardóttir, Þrumudætur, Sanju Shinju

Harpa

4. maí

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram Skaði Þórðardóttir, Þrumudætur og Sanju Shinju.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

  Skaði Þórðardóttir flytur grúvað raf pönk sem kitlar danstaugar áhorfenda.  

Þrumudætur er íslensk pönkhljómsveit en hana skipa Jara, Saga, Eva Dís og Eva Karín.  Þær mæta til leiks með mikla stemmingu og æsing og tjá tilfinningar unglinga í gegnum tónlistina.

Sanju Shinju er fjölþjóðlegt tónlistarverkefni en bandið skipa Hiroki Kamoshida, Rikhardur H. Fridriksson, Sigurlaug Thorarensen, Masaya Ozaki, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, Yoshimoto Yuichi og Yulia Vasileva.  Hljómurinn spannar allt frá klassískum píanótónum og poppi yfir í japanskt popp, tilraunarokk, hip-hop og hávaða svo úr verður hrífandi óreiða, full af jákvæðri orku.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger