Upprásin | HáRún, ΔΑΙΜΟΝΙΟ, álfur flyguy skrilljón

Harpa

26. janúar

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram HáRún, ΔΑΙΜΟΝΙΟ og álfur flyguy skrilljón.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í
tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

HáRún, eða Helga Rún Guðmundsdóttir, er indí-folk/popp söngvaskáld sem syngur hjartnæm lög á íslensku. Kassagítarinn spilar stórt hlutverk í lögunum, textarnir eru einlægir og kraftmikla röddin dregur hlustandann nær. HáRún dregur innblástur úr ýmsum áttum og málar oft upp myndir í lögum sínum með náttúrunni, en lögin fjalla meðal annars um söknuð, ofhugsanir, og löngunina að tilheyra. Hún gaf út sitt fyrsta lag í febrúar 2025 og er núna að vinna að sinni fyrstu plötu sem mun líta dagsins ljós haustið 2026. 
  
ΔΑΙΜΟΝΙΟ - sem þýðir verndarandi á grísku - skapar háværa og seiðandi raftónlist þar sem tónlistin spannar allt frá ambient-hljóðheimum til hraðrar tekno-tónlistar. Hún starfar þvert á miðla tónlistar og myndlistar. Nýjasta platan hennar, EPAGOGI, kom út árið 2026.

álfur fluguy skrilljón eru nýbakaðir tónlistarmenn, ennþá blautir bakvið eyrun, nýskriðnir úr kviðnum, ennþá með horið í nefinu og klístrið í kverkunum. Óumdeilanlegir hæfileikar og búa til tilraunakennt rapp ólíkt öllu sem þú hefur heyrt, frussandi bassi, ískrandi laglínur, íslenskur texti og rífandi stemming.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger