Upprásin | Falinn gjóður, Duft, Moriane Ténére

Harpa

17. nóvember

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram Falinn gjóður, Duft og Morjane Ténére.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.   Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.  

-

Falinn gjóður

Það bar svo til um þessar mundir, að þrír guttar, ýmist úr Vesturbænum eða Hafnarfirði, komu sér saman um að stofna mikilfenglegustu hljómsveit allra tíma. Hljómsveitin skyldi draga mikinn innblástur frá hljómsveitum eins og Þursaflokknum og Frank Zappa. Tónlistin blandar saman guðdómlegum laglínum og skondnum texta til að skapa nýja uppáhaldið þitt. Tónlist sem lætur þér líða nákvæmlega eins og gjóði í felum. Falinn gjóður er sigurvegari Músíktilrauna 2026. 

Sveitina skipa Aron Elí Arnarsson, bassi, söngur, Baldur Þórarinsson, hljómborð, söngur og Þorri Hrafnsson,  rafmagnsgítar  

-

  

Duft er níðþung harðkjarna- og öfgarokksveit sem hefur verið á miklu flugi eftir útgáfu frumraunarinnar Altar of Instant Gratification vorið 2024. Platan er full af hálsbrjótandi slögurum og málar dökkan hljóðheim þar sem mannkynið stefnir óumflýjanlega til glötunar.  

  

Sveitina skipa Alexander Freyr Þorvarðarson, söngur, Viktor Árni Veigarsson, bassi og bakraddir, Guðmundur Hermann Lárusson, gítar og bakraddir, Andrés Hjörvar Sigurðsson, gítar og bakraddir og Mikael Magnússon, trommur og bakdraddir.

-

  

Morjane Ténéré er söngkona og lagahöfundur sem sækir innblástur í þjóðlagatónlist og blús.

Ténéré merkir eyðimörk á tamasheq, tungumáli túarega, en orðið má einnig tengja við víðáttur, töfra og seiglu. Þessi myndheimur endurspeglast í tónlist Morjane, þar sem hún fjallar um mikilvægi þess að vernda jörðina, heiðra forfeðurnaog rækta samstöðu og hlýju.

Morjane hefur haldið yfir 300 tónleika víðs vegar um heim.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger