Upprásin | arfi, KHAIRKAN, Strákurinn fákurinn

Harpa

27. október

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram Arfi, Khairkan og Strákurinn fákurinn

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

arfi

Arfa skipa Katrín Helga Ólafsdóttir (K.óla), sem syngur og leikur á bassa, Stefan Vidal-Schneider á trommur og hljóðgervla og Tobias Link á básúnu, effektatæki og hljóðgervla. Leiðir þremenninganna lágu saman á tónlistarsmiðju í danska smábænum Fredericia árið 2022 þar sem þau uppgötvuðu sameiginlegan áhuga á melódísku poppi og spunatónlist

Fyrsta smáskífa sveitarinnar, spring underwater, kom út í maí 2026 í samstarfi við sóleyju, RAKEL og fleiri. Í tónlist arfi mætast togstreitan milli ofurtengdrar stafrænnar menningar og mannlegs eðlis og hún fangar jafnt ringulreiðina sem fegurðina í rafmögnuðum heimi samtímans.

--

KHAIRKHAN er tónlistarmaður frá Innri-Mongólíu, af Khorchin-ættbálknum í austurhluta Innri-Mongólíu, en býr nú í Reykjavík. Hann ólst upp á hinum víðfrægu Khorchin-sléttum, þar sem rík þjóðlagatónlistarhefð og munnmælasögur mótuðu uppvöxt hans.

Khairkhan leggur áherslu á hefðbundin mongólsk hljóðfæri á borð við morin khuur, tsuur og tovshuur, auk mongólsks barkasöngs sem er einn af hornsteinum tónlistar hans. Þjóðlagatónlistin sem hann flytur á rætur sínar einkum að rekja til Khorchin-héraðsins, þar sem margar af mikilvægustu tónlistarhefðum og tónlistarstefnum Mongóla urðu til.

Í dag vinnur Khairkhan að því að þróa nýja sýn á tilraunakennda mongólska þjóðlagatónlist, mótaða af lífi 21. aldar hirðingja í borgarsamfélagi. Markmið hans er að varðveita aldagamlar rætur og hefðir en túlka þær með nútímalegum hætti.

--

  Strákurinn fákurinn er akureysk hljómsveit sem spilar hamfara no wave. Meðlimir eru Agnieszka Staroń, Kęstutis Balčiūnas, Drengurinn fengurinn og Stefán Bessason.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger