© 2026 Tix Miðasala

IÐNÓ
•
2. ágúst
Miðaverð frá
3.000 kr.




Jazz Sunday Reykjavík - Every sunday 20pm
Emil Logi Heimisson sem gengur einnig undir listamannsnafninu Citronus er íslenskur píanóleikari og tónskáld. Hann hefur samið margskonar tónlist og tekið þátt í ýmiss konar verkefnum. Tónlist hans sækir í margskonar stefnur, svo sem jazz, fusion, fönk, kvikmyndatónlist, raftónlist og einnig þjóðlagahefðir Norðurlandanna. Hann hefur gefið út bæði jazz og raftónlist og stefnir að því að gefa út sína fyrstu live jazz-stuttskífu sem inniheldur 3 frumsamin lög af tónleikum sem hann hélt í Hörpu fyrr á árinu. Á þessum tónleikum má búast við lögunum af stuttskífunni ásamt nýjum slögurum.
Á tónleikunum spila með honum:
Stígur Grendal (trommur)
Jón Logi Pálmason (bassi)
Guðmundur Brynjar Þórarinsson (lúður)

