© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
11. ágúst
Miðaverð frá
1.000 kr.




Reykjavík Piano Festival er spennandi metnaðarfull hátíð sem tengir saman leiðandi erlenda píanókennara og alþjóðlegan hóp framúrskarandi píanónemenda, allt frá framhaldsstigi upp í háskólastig.
Hátíðin er nú haldin í fyrsta sinn og er lið kennara m.a. skipað Antoinette Perry (prófessor við USC Thornton tónlistarháskólann), Audrey Axinn (prófessor við Juilliard tónlistarháskólann), Carl Zhang píanóleikara, sem býr og starfar í Vínarborg og Andrew J. Yang listrænum stjórnanda hátíðarinnar, sem kennir við Tónskóla Sigursveins og Tónskólann í Reykjavík.
Nemendahópur hátíðarinnar er fjölbreyttur og kemur frá Íslandi, Bandaríkjunum, Póllandi og Spáni. Hátíðin stendur í viku með þéttskipaðri dagskrá, masterklössum, vinnustofum, einkatímum og ýmiskonar samveru og hópverkefnum. Hátíðinni lýkur með glæsilegum lokatónleikum í Hörpu.
Frekari upplýsingar: https://www.reykjavikpianofestival.com/

