© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
16. ágúst
Miðaverð frá
5.900 kr.




Í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið býður Paradigm til beittra og upplýsandi rökræðna í Silfurbergi í Hörpu sunnudaginn 16. ágúst kl. 20:00.
Á fundinum takast á fulltrúar þeirra sem hyggjast greiða atkvæði með og á móti því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Með:
Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmenn í hreyfingunni Já til að sjá, sem tala fyrir já-sjónarmiðinu.
Á móti:
Guðlaugur Þór Þórðarson og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem tala fyrir nei-sjónarmiðinu.
Markmið kvöldsins er að varpa skýru ljósi á helstu rök beggja fylkinga og gefa áhorfendum færi á að mynda sér upplýsta skoðun áður en gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.
Við hverju má búast af aðildarviðræðum? Hvað gæti Ísland unnið — og hverju gæti landið tapað? Er rétt að hefja viðræður til þess að sjá hvað stendur Íslandi til boða, eða felst þegar í slíkri ákvörðun pólitísk stefnumörkun?
Komdu og fylgstu með lifandi umræðu um eitt stærsta pólitíska álitamál samtímans.

