© 2026 Tix Miðasala
Stokkseyrarkirkja
•
6. september
Miðaverð frá
4.900 kr.




Jónas Sig á Haustgildi Markús & The Diversion Sessions hitar upp
Jónas Sigurðursson mun mæta með hljómsveit og halda tónleika í Stokkseyrarkirkju á Haustgildi laugardagskvöldið 6.9. Markús & The Diversion Session hitar upp en þeir hafa verið að senda frá sér nýtt efni nýlega.
Jónas þarf vart að kynna. Hann kom fyrst fram á sjónarsvið íslenskrar tónlistar með hljómsveitinni Sólstrandagæjunum en svo skaut honum aftur upp á stjörnuhiminn þegar hann gaf frá sér plötuna Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Hún kom út 2007 og nokkrum árum seinna gaf hann út efni sem hann hafði unnið með lúðrasveit Þorlákshafnar, sínum heimabæ. Mögnuð textagerð og sterkar melódíur hafa verið einkennandi fyrir tónlist Jónasar sem nær að snerta streng í íslenskri þjóðarsál.
Markús Bjarnason hefur komið víða við í íslenskri tónlist. Hann hefur verið fararbroddi hljómsveita á borð við Sofandi og Skáta. Jafnframt hefur hann unnið að sínu sólóefni. Hljómsveitin hans Diversion Sessions hefur spilað með honum í ýmsum myndum í mörg ár. Núna er hljómsveitin að gefa út glænýtt efni sem hefur fengið góðar viðtökur hjá hlustendum.
Tonleikarnir eru hluti af uppskeru- og menningarhátíðinni Haustgildi á Stokkseyri.
Haustgildi hefur verið haldið á Stokkseyri seinustu ár. Haustgildi – menning er matarkista – er haldin á Stokkseyri fyrstu helgina í september ár hvert. Haustgildi er uppskeruhátíð í víðri merkingu sem fagnar hausti og uppskeru með það að markmiði að tvinna saman menningarviðburði og markað í fjölskylduvæna upplifun við ströndina. Menning er nefnilega matarkista.

