© 2026 Tix Miðasala
Breiðholtskirkja
•
18. júlí
Miðaverð frá
0 kr.




𝗦𝘆́𝗻 𝗲𝗻𝗱𝘂𝗿𝗿𝗲𝗶𝘀𝗻𝗮𝗿𝗶𝗻𝗻𝗮𝗿 𝗮́ 𝗮́𝘀𝘁𝗶𝗻𝗮
Ástin í öllum sínum gervum átti sér sterkan og miðlægan sess í vinsælum söngvum endurreisnarinnar ekkert síður en í dægurtónlist samtímans. Efnisskrá tónleikanna vindur sig gegnum “dægurtónlist” endurreisnarinnar og hinar marghliða birtingarmyndir ástarinnar sem þar er að finna.
Þessir ástarsöngvar endurreisnarinnar voru svo vel þekktir að þeir hafa varðveist í ótal ólíkum útgáfum. Á tónleikunum hljóma hljóðfæraútgáfur sem skarta fjölmörgum skreytingum eða svokölluðum “dímínúsjónum.” Líkt og djasstónlistarmenn spinna í kringum djassstandarda ófu tónskáld endurreisnarinnar flókinn spunavef um vinsæla ástarsöngva síns tíma, eins og heyra má í efnisskránni okkar. Tónskáldin, sem gátu reitt sig á það að hlustandinn þekkti ástarsöguna sem byggi að baki, drógu oft fram ákveðin orð með tónmálun og ýttu undir ákveðnar skírskotanir í textanum með skreytingum sínum og gæddu þannig mismunandi birtingarmyndir ástarinnar lífi.
𝗗𝘂𝗼 𝗣𝗮𝘀𝘀𝗮𝗴𝗶
Tvíeykið Passaggi er nýtt samstarf Clare Beesley endurreisnarþverflautuleikara og Punto Bawono, sem leikur á endurreisnarlútu og vihuelu. Á 17. öld var algengt að tónlistarmenn tækju vinsæl sönglög og byggju til úr þeim nýjar tónsmíðar, þar sem þeir fylltu upp í lagnóturnar með alls kyns skrauti úr styttri nótnagildum. Þessi skreytingatækni nefnist “passaggi”, en þaðan kemur nafn tvíeykisins.
Duo Passaggi gerir sér far um að rannsaka og gera tilraunir með fyrirbærið retórík í tónlist, þar sem retórísk tjáning kemst til skila gegnum fínleg blæbrigði í hljóðstyrk og lit. Raddir hljóðfæranna fléttast saman með ryþmískum sveigjanleika og krafti, en á þann hátt svipar þeim til dansara sem mynda eina heild og eru þó samtímis sjálfstæðir einstaklingar.
Nánar um tónleikana: https://www.1515.is/atburdir/duo-passaggi
Almennt miðaverð er 4000 kr. en er 3000 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn. Frítt er fyrir unglinga og börn.

