Opnunartónleikar Reykholtshátíðar

Reykholtskirkja

24. júlí

Sala hefst

26. júní 2026, 12:00

(eftir 16 klukkustundir)

  Opnunartónleikar Reykholtshátíðar  

  

Feðgarnir Jóhann Kristinsson og Kristinn Sigmundsson hafa um árabil skipað sér í fremstu röð íslenskra söngvara og markað djúp spor í tónlistarlífi landsins. Kristinn hefur um áratugaskeið átt glæsilegan feril sem bassasöngvari á alþjóðlegum vettvangi og komið fram á mörgum af virtustu óperu- og tónleikahúsum heims. Jóhann hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn fremsti barítónsöngvari sinnar kynslóðar og vakið athygli bæði á Íslandi og erlendis, fyrir fjölbreytt verkefni á sviði óperu, kirkjutónlistar og ljóðasöngs.

Margir minnast enn tónleika feðganna á Reykholtshátíð sumarið 2020, þar sem söngur þeirra heillaði áheyrendur sem fylltu Reykholtskirkju þannig að fólk varð frá að hverfa. Það er því sérstakt fagnaðarefni að þeir skuli koma fram á opnunartónleikum Reykholtshátíðar 2026. Á tónleikunum flytja þeir vandaða og fjölbreytta efnisskrá ásamt píanóleikaranum Elenu Postumi, sem hefur komið fram víða um Evrópu og getið sér gott orð fyrir næma túlkun.

Á tónleikunum munu einnig fjórir af strengjaleikurum hátíðarinnar flytja Quartettsatz D.703 eftir Franz Schubert (1797–1828). Verkið, sem er eitt af þekktustu kammerverkum Schuberts, var samið árið 1820 og markar mikilvægt skref í þróun hans sem tónskálds. Þótt strengjakvartettinn hafi aldrei verið fullgerður hefur þessi eini lokakafli öðlast sjálfstætt líf á tónleikapöllum fyrir kraftmikla framvindu, ríkulegt hljóðfærasamspil og einkennandi ljóðræna tjáningu Schuberts. Flytjendur eru Páll Palomares og Pétur Björnsson á fiðlu, Guðbjartur Hákonarson á víólu og Sigurgeir Agnarsson á selló.

Flytjendur:
Jóhann Kristinsson, barítón
Kristinn Sigmundsson, bassi
Elena Postumi, píanó
Joaquín Páll Palomares, fiðla
Pétur Björnsson, fiðla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló

Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar, reykholtshatid.is       

Sjáumst á Reykholtshátíð!

Miðasala opnar kl. 19:00
Húsið opnar kl. 19:30

Miðaverð: 4.500 kr.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger