© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
19. september
Sala hefst
19. júní 2026, 10:00
(eftir 19 klukkustundir)




Vísna- og dansvaka
Vöku 2026 lýkur með upplifun sem sameinar það sem hátíðin stendur fyrir: tónlist, dans, kveðskap, sögur og samveru.
Kvöldið hefst á stálheiðarlegri íslenskri hagyrðingaskemmtun undir stjórn Evu Maríu Jónsdóttur og Péturs Blöndal þar sem hagyrðingar af yngri og eldri kynslóð takast á við fjölbreytt yrkisefni.
Að því loknu breytir Þjóðdansafélag Reykjavíkur fordyri Salarins í dansgólf þar sem gestir fá að upplifa ekta þjóðdansaball við undirleik hljóðfæraleikara frá Íslandi, Færeyjum og Noregi. Öll eru velkomin að taka þátt, hvort sem þau kunna sporin eða ekki.
Veitingar verða til sölu allt kvöldið og barinn opinn.
Þau sem ekki treysta sér út á dansgólfið eru að sjálfsögðu velkomin með handverk eða prjóna og geta notið stemningarinnar úr öruggri fjarlægð.
Fram koma:
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Félag harmoníkuunnenda í Reykjavík
Kristian Blak o.fl. frá Færeyjum
Ingrid Lingaas Fossum, Vegar Vårdal og Vegard Hansen frá Noregi
//
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

