© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
13. september
Sala hefst
19. júní 2026, 10:00
(eftir 13 klukkustundir)




Opnunartónleikar Vöku 2026
Vaka 2026 hefst með glæsilegum opnunartónleikum þar sem tónlist, dans og lifandi þjóðlistahefðir mætast á einum stað.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur, sem fagnar 75 ára afmæli á árinu, flytur veglegt dansatriði sem endurspeglar langa sögu félagsins og lifandi íslenska danshefð.
Sérstakur gestur hátíðarinnar er pólska tónlistarkonan Ania Broda, sem hefur verið nefnd ein frumlegasta rödd pólsku tónlistarsenunnar. Ania Broda er þekkt fyrir kraftmikla raddbeitingu sem byggir á svokallaðri „white singing“ söngtækni, auk þess sem hún leikur á ýmis óvenjuleg hljóðfæri, þar á meðal pólskan dulcimer, kantele og hurdy-gurdy.
Í tónlist hennar sameinast pólskur þjóðlagaarfur, fornar sönghefðir og tilraunagleði á einstakan hátt og úr verður tónlistarheimur sem bæði hrífur og kemur á óvart.
FUNI, samstarfsverkefni Báru Grímsdóttur og Chris Foster, fagnar útgáfu plötunnar Gárur. Um áratugaskeið hafa þau helgað sig flutningi, rannsóknum og miðlun íslenskrar þjóðlagatónlistar og átt mikilvægan þátt í að kynna hana bæði á innlendum og erlendum vettvangi.
Á Gárum eru íslensku þjóðlögin enn þungamiðjan, en að þessu sinni umkringd hljóðheimi sem sækir innblástur í íslenskt landslag og náttúru. Söngur, langspil, kantele og önnur hljóðfæri fléttast saman við upptökur úr íslensku umhverfi þannig að náttúran sjálf verður eins og þriðji þátttakandinn í verkinu.
Líkt og gárur á vatni hafa þessi lög borist milli kynslóða, tekið breytingum og þróast með tímanum. Með Gárum hylla Bára og Chris þann lifandi arf sem þjóðlögin eru og miðla honum áfram til nýrra kynslóða.
//
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

