© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
13. september
Sala hefst
19. júní 2026, 10:00
(eftir 20 klukkustundir)




VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri.
Á meðal þeirra sem koma fram eru þjóðlagatvíeykið FUNI sem fagnar útgáfu nýrrar plötu og verðlaunasveitin UMBRA sem flytur sínar einstöku útsetningar af íslenskum þjóðlögum. Meðal erlendra gesta eru þrír af fremstu þjóðlagatónlistarmönnum Noregs, langeleik-”drottningin” Ingrid Lingaas Fossum og fiðlu- og harðangursfiðluleikarinn Vegar Vårdal ásamt Vegard Hansen harmoníkuleikara, pólska söngkonan Ania Broda og færeyskt tónlistar- og dansfólk undir stjórn Kristians Blak.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Þjóðdansafélag Reykjavíkur taka einnig virkan þátt í dagskránni ásamt fjölmörgum öðrum einstaklingum, félögum og stofnunum sem starfa á sviði þjóðlista.
Þá verður boðið upp á árlegan rímnafögnuð, kvikmyndasýningu, fjölbreyttar vinnusmiðjur, hlaðvarp, málþing, markað og fjölskyldudagskrá. Hátíðinni lýkur með hagyrðingaskemmtun undir stjórn Evu Maríu Jónsdóttur og Péturs Blöndal. Að hagyrðingaskemmtuninni lokinni verður svo þjóðdansaball við undirleik íslenskra, norskra og færeyskra hljóðfæraleikara.
VAKA er hátíð lifandi hefða þar sem fólk kemur saman til að upplifa og taka þátt. Hvort sem þú kemur til að hlusta, læra, dansa, syngja, skapa eða einfaldlega njóta samverunnar, þá gefst þér kostur á að kynnast þjóðlistinni á nýjan hátt – og verða hluti af henni.
Með því að kaupa hátíðarpassa tryggir þú þér aðgang að öllum helstu viðburðum hátíðarinnar og styrkir þjóðlistastarf á Íslandi. Hugmyndin er að sem flestir geti tekið þátt og því eru þrír verðflokkar í boði á flesta viðburði. Hver og einn velur það verð sem best hentar.
Kíktu á heimasíðu hátíðarinnar til að nálgast heildardagskrá og nánari upplýsingar:
Vökufélagið á Facebook:

