Diddú og Hrólfur í Tjarnarborg - Berjadagar

Menningarhúsið Tjarnarborg

26. júní

Miðaverð frá

4.500 kr.

Diddú og Hrólfur í Tjarnarborg - Berjadagar Tónlistarhátíð

  Tveir af allrafremstu söngvurum landsins mætast á tónleikum í Menningarhúsinu Tjarnarborg föstudaginn 26. júní kl. 20. Sigrún Hjálmtýsdóttir stígur á svið í Menningarhúsinu Tjarnarborg í fyrsta sinn og heilsar norðanfólki, gestum og góðum áheyrendum með list sinni, hlýju og einstökum nærverukrafti. Hún hefur þá sjaldgæfu náðargáfu að laða nýja hlustendur að sígildri tónlist og gera hana aðgengilega með hlýju sinni og einlægni. Henni til halds og trausts þetta kvöld verður baritónsöngvarinn Hrólfur Sæmundsson, sem heillaði áheyrendur á Berjadögum 2024 með eftirminnilegri dagskrá meðal annars senum úr Macbeth eftir Verdi og áhrifamiklum lögum eftir Jón Leifs. Hrólfur hefur sungið á virtum óperusviðum víða um heim og skipar sér meðal fremstu söngvara þjóðarinnar. Með þeim leikur píanóleikarinn Einar Bjartur Egilsson, framúrskarandi meðleikari og kammermúsíkant, sem hefur þegar unnið hug og hjörtu tónleikagesta í Ólafsfirði frá fyrstu heimsókn sinni sumarið 2022. Einar Bjartur er eftirsóttur samstarfsmaður söngvara og hljóðfæraleikara, og píanóleikur hans einkennist af næmi, krafti og fágun. Þetta verða einstakir tónleikar sem enginn tónlistarunnandi má láta fram hjá sér fara. Kraftmikil sellósvíta spænska tónskáldsins, Gaspar Cassadó og óperuaríur munu án efa hrista upp stemningu eins og hún gerist best á Berjadögum!  

Dagskrá hátíðarinnar:

  

Föstudagur // Friday
Að morgni//In the morning - Ólafsfjarðarkirkja
Tónleikar//Concert
11:00 - 11:45

//English below//

Fram kemur:

Ólöf Sigursveinsdóttir, barokkselló

„Bach...í bítið“ - Leikið eftir handriti Önnu Magdalenu

Svíta nr. 5 í c-moll, BWV 1011 eftir Jóhann Sebastían Bach. Ólöf Sigursveinsdóttir leikur sex þætti svítunnar á barokkselló í kirkjunni og tekur flutningurinn hálftíma.

Að tónleikunum loknum er gestum boðið upp á norðlenska, heimabakaða ostaköku og kaffibolla. Ljúf og nærandi morgunstund í tónum - og einnig bragði!

//

"Bach & Breakfast" - performance from the original manuscript by Anna Magdalena

Suite No. 5 in C minor, BWV 1011 by Johann Sebastian Bach. Ólöf Sigursveinsdóttir plays six movements of the suite on baroque cello in the church. The performance lasts half an hour.

After the concert, guests are offered a Nordic, homemade cheesecake and a cup of coffee. A delicious and nutritious morning in tune - and also with taste!


Föstudagur // Friday
Kvöld//Evening - Menningarhúsið Tjarnarborg
Tónleikar//Concert
20:00-22:15
Diddú

//English below//

‘Á vængjum söngsins um lönd og láð’

Fram koma:

Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran

Hrólfur Sæmundsson, baritón

Ólöf Sigursveinsdóttir, selló

Einar Bjartur Egilsson, píanó

Efnisskrá:

Tónlist frá ýmsum löndum Íslandi, Ítalíu, Tékklandi.

Diddú ætlar einnig að tengja við Ólafsfjörð með lögum og stemningu og án efa senda alla gesti inn í töfrandi hljóðheim íslenskra sönglaga til að mynda með tónsmíðum Tryggva M. Baldvinssonar v/ljóð Sveinbjarnar Tryggvasonar og Þórarins Eldjárns. Hrólfur frumflytur sín eigin sönglög t.d. ‘Ljóð um börn’ v/ljóð Gerðar Kristný o.fl. og einnig lög eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Atla Heimi Sveinsson og Edvard Grieg. Ólöf leikur einleikssvítu á selló eftir hinn spænska Gaspar Cassadó og Rómönsu eftir Sigursvein D. Kristinsson!

Um tónleikana:

Ein ástsælasta söngkona Íslendinga stígur á svið í Menningarhúsinu Tjarnarborg og heilsar norðanfólki og gestum með list sinni, hlýju og nærverukrafti. Fáir íslenskir listamenn hafa náð jafn djúpri tengingu við þjóðina og Diddú. Enda er hún skreytt heiðursverðlaunum Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir framlag sitt og hefur verið valin fjórum sinnum ‘söngkona ársins’.  Með söng sínum hefur hún snert hjörtu landsmanna allt frá popplögum á borð við Tunglið, tunglið taktu mig, til stórbrotinna hlutverka á sviði Íslensku óperunnar. Á síðasta ári fagnaði hún 70 ára afmæli sínu með tónleikum í Eldborg og stendur enn í fullum blóma sem einn af okkar fremstu listamönnum. Ferill Diddúar ber vitni um áræðni, styrk og óbilandi eldmóð, ásamt þeirri sjaldgæfu náðargáfu að laða nýja hlustendur að sígildri tónlist og gera hana aðgengilega með hlýju sinni og einlægni. Henni til halds og trausts þetta kvöld verður baritónsöngvarinn Hrólfur Sæmundsson, sem heillaði áheyrendur á Berjadögum 2024 með eftirminnilegri dagskrá meðal annars með tónlist úr óperunni Macbeth eftir Verdi og áhrifamiklum lögum eftir Jón Leifs og með frumflutningi eigin laga við ljóð William Shakespear. Í þetta skiptið flytur hann eigin lög við ljóð Gerðar Kristnýjar. Hrólfur syngur á virtum óperusviðum víða um heim og skipar sér meðal fremstu söngvara þjóðarinnar. Berjadagar tónlistarhátíð eiga sérstakan stað í hjarta Hrólfs þar sem hann á hlýjar æskuminningar frá dvöl fjölskyldunnar þegar faðir hans starfaði um tíma sem læknir í Ólafsfirði og þau áttu heimili í ‘uppá brekku’. Með þeim leikur píanóleikarinn Einar Bjartur Egilsson, framúrskarandi meðleikari og kammermúsíkant, sem hefur þegar unnið hug og hjörtu tónleikagesta í Ólafsfirði frá fyrstu heimsókn sinni sumarið 2022. Einar Bjartur er eftirsóttur samstarfsmaður söngvara og hljóðfæraleikara jafnt, og leikur hans einkennist af næmni, krafti og fágun. Kraftmikil sellósvíta spænska tónskáldsins, Gaspar Cassadó og óperuaríur munu án efa hrista upp stemningu eins og hún gerist best á Berjadögum

//

‘On the wings of song across the land’

Artists:

Sigrún Hjálmtýsdóttir, sopran

Hrólfur Sæmundsson, bariton

Ólöf Sigursveinsdóttir, Violoncello

Einar Bjartur Egilsson, piano

Program:

Music from various countries Iceland, Italy, Czech Republic.

Diddú will connect with Ólafsfjörður with songs and atmosphere and undoubtedly send all guests into the magical sound world of Icelandic songs, for example with compositions by Tryggvi M. Baldvinsson with poems by Sveinbjarn Tryggvason and Þórarinn Eldjárn. Hrólfur will premiere his own songs, e.g. ‘Ljóð um börn’ with poems by Gerðar Kristný etc. and also songs by Hjálmar H. Ragnarsson, Atli Heimi Sveinsson and Edvard Grieg. Ólöf will play a cello suite by the Spanish Gaspar Cassadó and a Romanza by Sigursveinn D. Kristinsson!

About the Concert

One of Iceland's most beloved singers takes to the stage at the Tjarnarborg Cultural Center and greets northerners and guests with her art, warmth and unique presence. Few Icelandic artists have achieved such a deep connection with the Icelandic nation as Diddú. After all, she has been decorated with an honorary award from the Icelandic Music Awards for her contribution and has been chosen as ‘a singer of the year’ multiple times. With her singing, she has touched the hearts of the countrymen, from pop songs such as ‘Tunglið, Tunglið Taktu Mig’ , to magnificent roles on the stage of the Icelandic Opera. Last year, she celebrated her 70th birthday with a concert in Eldborg and is still in full bloom as one of our leading artists. Diddú's career is a testament to her boldness, strength and unwavering enthusiasm, along with the rare gift of attracting new listeners to classic music and making it accessible with her warmth and sincerity. She will be supported by baritone singer Hrólfur Sæmundsson, who captivated the audience at Berjadagar 2024 with a memorable program that included music from Verdi's opera Macbeth and moving songs by Jón Leifs, as well as the premiere of his own songs to poems by William Shakespeare. This time, he will perform his own songs to poems by Gerður Kristný. Hrólfur has sung at prestigious opera houses around the world and is among the nation's leading singers. Olafsfjordu Music Festival holds a special place in Hrólfur's heart, as he has warm childhood memories of his family's stay when his father worked as a doctor in Ólafsfjörður. They will be joined by pianist Einar Bjartur Egilsson, who has already won the hearts and minds of concertgoers in Ólafsfjörður since his first visit in the summer of 2022. Einar Bjartur is a sought-after collaborator with singers and instrumentalists alike, and his playing is characterized by sensitivity, power and sophistication. The powerful cello suite by the Spanish composer, Gaspar Cassadó and opera arias will undoubtedly shake up the atmosphere as it does best at Olafsfjordur Music Festival.

___________________________________________________________________________

Laugardagur // Saturday
Seinni partur//Afternoon - Brimsalir samfélagshús - Námuvegur 8
Samsöngur//Singing together
17:00-18:00

Vöfflur, söngur og kaffi! Allir velkomnir til Ídu. Listamaður kvöldsins mætir!

//

Waffles, singing and coffee! Welcome everyone

Laugardagur // Saturday
Kvöld//Evening Ólafsfjarðarkirkja - The church of Ólafsfjörður
Tónleikar//Concert
20:00-21:30
Svavar Knútur

//English below//

‘Vakað með vísum’

Fram koma:

Svavar Knútur, gítar og söngur

Íris Dögg Gísladóttir, fiðla

Jóhanna Ósk Valsdóttir, víóla

Kristín Lárusdóttir, selló

Um tónleikana:

Svavar hefur um árabil verið einn af þeim listamönnum sem kunna að kveikja ljós í salnum með nærveru, hlýju og tónlist sem snertir. Hann sækir innblástur í íslenskan ljóðaarf, leikur sér með þjóðsögur, vísur og frásagnir, og leiðir áheyrendur inn í heim þar sem orð og tónar fléttast saman af einlægni og töfrum. Svavar mun koma á óvart og frumflytja ný lög á tónleikunum ásamt þremur strengjaleikurum en saman halda þau til Þýskalands í tónleikaferð næsta haust. Tónlistarunnendur og gestir í Ólafsfirði ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara.

//

An Evening of verses

About the Concert

For years, Svavar has been one of those artists who knows how to light up the hall with presence, warmth and touching music. He will do so in Ólafsfjörður Church on June 27th at 8:00 PM. He draws inspiration from Icelandic textual heritage, plays with folk tales, verses and stories, and leads the audience into a world where words and tones intertwine with unique sincerity. In the program 'Vakað með vísum' on Saturday, June 27th, Svavar plays with Icelandic textual heritage, folk tales and well-known poems, creating a warm and charming musical awakening with singing and atmosphere that undoubtedly merge into one unforgettable experience. Svavar will premiere new songs at the concert along with three string players, since they plan to go on tour in Germany next fall. Music lovers and visitors to Ólafsfjörður should not miss this event.

____________________________________________________________________________


Sunnudagur // Sunday
Að morgni // In the morning - Kvíabekkjarkirkja
Tónleikar//Concer
11:00 - 11:45

Spuni í Kvíabekkjarkirkju: Láttu koma þér á óvart! Skoðaðu umhverfið á þessum sögufræga stað. Gestir sameinast á messutíma á Kvíabekk.

Imaginative play in Kvíabekkjarkirkja: Be surprised! Explore the surroundings of this historic place. Guests gather at 11:00 am at Kvíabekkur, the ancient church of Ólafsfjörður.


Sunnudagur // Sunday
Seinnipartur // Afternoon - Kleifar - Ganga

Komdu á Hvanndalir Lodge /Gamli Arion banki við Aðalgötu kl. 18:00. Sameinast í bílum til Kleifa, bílunum lagt og gestir og flytjendur labba saman inní Árdal og Þverárdal eftir þægilegum kindagötum. Komið til baka um kl. 20:00. Skráning í sms 6152231

Come to Hvanndalir Lodge, Street: Aðalgata, Ólafsfjörður, at 6:00 PM. We will drive together in cars to Kleifar, a 4 minutes drive. The cars will be parked and guests and performers will walk into Árdalur and Þverárdalur along comfortable sheep paths. We will return around 8:00 PM. Please register for the hiking in sms +354 6152231

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger