AGI Open

Gróska

1. október

Miðaverð frá

9.900 kr.

Hönnunarráðstefnan AGI Open kemur til Reykjavíkur!

AGI Open mun fara fram 1.október í Gamla Bíó með fyrirlestrum og 2.október í Grósku með vinnustofum og umræðum af ýmsu tagi. Dagskrá 9:30 - 17:30 báða dagana.

Tveggja daga Early Bird passi á 19.900 til 10.ágúst.

Þessa tvo daga munu ríflega 20 fyrirlesarar og enn fleiri þáttakendur fjalla um notendaupplifun, letur, mörkun, forritun, bókahönnun og handbragð - svo eitthvað sé nefnt. Fylgist með þróun dagskrárinnar og tilkynningum um fyrirlesara á vef AGI Open og Instagram.

Þetta er ómetanlegt tækifæri til að tengjast þeim sem taka þátt í að móta sjónræna miðlun um allan heim, en ráðstefnan á erindi við alla þá sem hafa áhuga á þróun hönnunar - og eigin sköpun.

Verð

  • Early Bird - Tveggja daga passi: 19.900

  • Tveggja daga passi- Fullt verð: 34.900

  • Eins dags passi - Fullt verð: 29.900

  • Nemamiði - Tveggja daga passi: 9.900

AGI Open er ráðstefna á vegum Alliance Graphic International (AGI), sem var stofnað 1951 í þeim tilgangi að stuðla að framgangi grafískrar hönnunar með fyrirlestrum, útgáfum og ýmiskonar fræðslu. Ráðstefnan er hluti af AGI Congress, sem árlega sameinar meðlimi samtakanna, nú í Reykjavík undir þemanu “Fire & Ice”. AGI Open er ekki rekin í hagnaðarskyni og er leið fyrir meðlimi til að gefa til skapandi samfélags viðkomandi borgar.

AGI Open ráðstefnan er unnin í samstarfi við FÍT og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Verkefnastjórn, framleiðsla og listræn stjórn er í höndum Karlssonwilker, sem eru meðlimir í AGI.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger