Salurinn

9. september

Miðaverð frá

3.900 kr.

Barokkbandið Brák hefur frá árinu 2014 haldið fjöldamarga tónleika víðsvegar um landið. Bandið hefur einnig margsinnis verið tilnefnt til Íslensku Tónlistarverðlaunanna en verðlaunin féllu einmitt hópnum í skaut árið 2021 fyrir tónleikana “Brák og Bach”. Hljóðfæraleikarar Brákar hafa öðlast gríðarmikla reynslu á 10 ára starfsferli hópsins og búa nú yfir sérþekkingu á upprunaflutningi barokktónlistar. Sú sérþekking er orðin að ríkum arfi innan íslenskrar tónlistarsenu sem hefur fengið að blómstra í verkefnum hópsins.

Barokkbandið Brák hefur verið í útrás síðustu misseri og haldið tónleika fyrir fullum sal bæði í Póllandi og Lettlandi og heldur aftur til Póllands í haust á þessu ári til að flytja þetta sama prógramm, Fallin, með Benedikt Kristjánssyni á hátíðinni All’improvviso í borginni Gliwice.

Benedikt kristjánsson stundaði söngnám við Söngskólann og Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk framhaldsnámi frá Hanns Eisler tónlistarháskólanum í Berlín árið 2015. Benedikt hefur hlotið fjöldamargar tilnefningar og unnið til fjölda verðlauna þar á meðal fyrstu verðlaun í CantateBach keppninni í Greifswald 2011, Bjartasta vonin og tvisvar Söngvari ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum, þýsku Opus Klassik verðlaunin fyrir “nýstárlegustu tónleika ársins” ofl. — Benedikt kemur reglulega fram í helstu tónleikahúsum Evrópu og Ameríku og á stærstu barokkhátíðum heims.Arngerður María Árnadóttir á að baki fjölbreytta menntun og starfsreynslu á sviði tónlistar. Á síðustu árum hefur hún lagt æ meiri áherslu á tónsmíðar og hafa mörg verka hennar verið flutt opinberlega, m.a. af Mótettukór Hallgrímskirkju, Kór Akureyrarkirkju, Stirni Ensemble, Dómkórnum í Reykjavík, Strokkvartettinum Sigga, Söngsveitinni Fílharmóníu, Birni Steinari Sólbergssyni, Caput og  Píanókvartettinum Neglu.  Arngerður er einnig mjög virk sem tónlistarflytjandi og útsetjari og er hún meðlimur tónlistarhópsins Umbru og dúóinu "Translations" sem er samstarf hennar og Unu Sveinbjarnardóttur fiðluleikara.Fallin

Hér flytja Brák og Benni nýja tónleikadagskrá þar sem meðal annars verður frumflutt nýtt verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur. Mörg verka Arngerðar eru undir þjóðlegum áhrifum og í þessu nýja verki mun hún leita á þær slóðir ásamt því að sækja innblástur til barokksins, og þá sér í lagi til kantata J.S. Bach sem hún þekkir mætavel eftir að hafa starfað sem organisti og kórstjóri í fjölda ára. Verkinu hennar Arngerðar verður síðan teflt saman við aríur úr kantötum eftir J.S. Bach og hljóðfæraverk eftir Telemann, Schaffrath og fleiri tónskáld síðbarokksins. Allt verður þetta flutt í hlýjum hljómi upprunahljóðfæra.

Á tónleikunum gefst áhorfandanum tækifæri á að hverfa til þýskalands 18. aldar og upplifa tíðaranda síðbarrokksins leikin í þeim hljóðheim sem tíðkaðist er verkin voru samin. Tala þessar sögur enn til okkar í dag? Enn fremur má fela nýju verki Arngerðar hlutverk sögumannsins, sem gefur tíðarandanum samhengi og tengingu við okkar tíma. Finnum við líkindi við þeirra tíma?

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger