© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
30. september
Miðaverð frá
3.900 kr.




Bjargey Birgisdóttir fiðluleikari og Ólína Ákadóttir píanóleikari eru ungar listakonur sem þegar hafa getið sér gott orð fyrir hljóðfæraleik sinn. Þær leiða hér saman hesta sína í Hannesarholti og flytja saman þrjú verk eftir Beethoven, Grieg, Jórunni Viðar.
Bjargey Birgisdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Helgu Steinunni Torfadóttur í Allegro Suzukitónlistarskólanum og útskrifaðist frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar þar sem kennari hennar var Auður Hafsteinsdóttir. Hún lauk bakkalárgráðu frá Hochschule für Musik Basel undir handleiðslu Barböru Doll árið 2023 og útskrifaðist nýverið með meistaragráðu frá Hochschule für Musik Freiburg undir handleiðslu Simone Zgraggen. Bjargey hefur hlotið margvísleg verðlaun og styrki fyrir fiðluleik sinn, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið konsertmeistari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún var í starfsnámi hjá Philharmonisches Orchester Freiburg árið 2024 og er meðlimur hinnar virtu Gustav Mahler Jugendorchester.
Ólína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu, Óperudögum, Asker Kammerkonserter, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig stendur Ólína fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum, þ.á.m. hefur hún sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar, einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu, barnasýningar, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð.

