© 2026 Tix Miðasala
Siglufjarðarkirkja
•
1. júlí
Miðaverð frá
4.000 kr.




Lúðraflokkur lýðveldisins
Lúðraflokkur lýðveldisins heldur upp á 150 ára afmæli Lúðurþeytarafélags Reykjavíkur, fyrstu lúðrasveitar Íslands. Leikið verður á hljóðfæri frá lokum 19. aldar og lög leikin í sexradda útsetningum eins og tíðkuðust í árdaga lúðrasveita á Íslandi. Á efnisskránni eru verk eftir Helga Helgason, stofnanda Lúðurþeytarafélags Reykjavíkur, og erlenda samtímamenn hans.
Lúðraflokkur lýðveldisins er skipaður ungum hljóðfæraleikurum sem flestir stunda nám við erlenda tónlistarháskóla.
Ólafur Elliði Halldórsson trompet
Gunnar Kristinn Óskarsson trompet
Þórður Hallgrímsson althorn og trompet
Steinn Völundur Halldórsson barítónhorn og básúna
Aurora Rósudóttir Luciano básúna
Breki Sigurðarson túba

