Undirdjúpin

Borgarleikhúsið

14. - 28. febrúar

Miðaverð frá

7.200 kr.

Hilmir Snær Guðnason mætir áhorfendum af fullum krafti í Undirdjúpunum – nístandi, fyndinni og óvæginni sýningu byggðri á einu áhrifamesta verki Fjodors Dostojevskís.  

 Í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar verður sagan að magnþrungnum einleik um mann sem stendur einn gegn öllum - en þó aðallega sjálfum sér. Hér takast á stolt og skömm, þráin eftir nálægð og löngunin til að brjótast undan reglum skynseminnar.  

 Á sviðinu tekst Hilmi Snæ að draga áhorfendur inn í hugarheim manns á mörkum örvæntingar og uppreisnar, á meðan Þorleifur Arnar umbreytir klassískum texta í lifandi, sjónræna og kraftmikla sviðsupplifun. Undirdjúpin er sýning sem lifir áfram löngu eftir að tjaldið fellur.

Höfundur: Fjodor Dostojevskí

Leikgerð: Rune David Grue

Þýðing: Maríanna Clara Lúthersdóttir

Leikstjórn: Þorleifur Örn Arnarsson

Leikmynd og búningar: Jósef Halldórsson

 

Leikari:

Hilmir Snær Guðnason

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger