© 2026 Tix Miðasala
Selárdal, 465 Vesturbyggð
•
7. ágúst
Miðaverð frá
2.500 kr.




Upptaktur að Selárdalshátíð
Föstudaginn 7. ágúst
Listasafni Samúels föstudaginn 7. ágúst kl 16
Kl. 16 verða opnaðar sýningar Húberts Nóa Jóhannessonar og Jónu Þorvaldsdóttur Sýning Listvinnslunnar mun auk þess verða kynnt en hún verður opin í safninu í allt sumar.
Safn Gísla á Uppsölum
Kl. 18 á föstudeginum 7. ágúst verður Safn Gísla Uppsölum formlega opnað með pompi og pragt.
Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar opnar sýninguna. Þröstur Leó Gunnarsson les úr á kvæðum og hugleiðingum Gísla. Krummi og Andri Söbbuson sjá um tónlist.
Boðið verður upp á drykki og viðbit að hætti Gísla.
Selárdalshátíð
Laugardaginn 8. ágúst
Kl. 12 Söguganga að Uppsölum. Umsjón Sólveig Ólafsdóttir.
Kl. 12-15
Sólmyrkvasmiðja. Umsjón Sirra Sigrún Sigurðardóttir.
Íslandsmeistaramót í flugdrekagerð. Umsjón Fjóla Eðvarðsdóttir.
Kl 15 Íslandsmeistaramót í flugdrekaflugi
Kl 16 Erindi í kirkjunni
Guðni Th. Jóhannesson: Sagan af Jóni Sigurðssyni í Verdölum. Hvernig og hvers vegna er hún sögð?
Ólafur J. Engilbertsson: Séra Páll Björnsson og galdramál í Selárdal
Sólveig Ólafsdóttir og Daníel Hansen: Gísli á Uppsölum og hollvinir hans
Kl. 18 Krásir á boðstólum
Kl 20 Tónleikar í kirkjunni
Krummi, Kraftgalli og Hermigervill
Kl 23 Fjörusöngur
Hátíðin er til styrktar söfnunum í Selárdal
Þau sem veita frjáls framlög fá aðgang að hátíðinni, veisluföngum og tjaldsvæði.
a. aðgangur á Selárdalshátíð – 10.000
b. aðgangur á Selárdalshátíð og krásir 20.000
c. aðgangur á Selárdalshátíð og tjaldstæði. 15.000
d. aðgangur á Selárdalshátíð með veisluföngum og tjaldstæði. 25.000
e. skammtímagjald á opnun sýninga 2.500
f. tjaldstæði: 5.000 á mann fyrir tvær nætur

