© 2026 Tix Miðasala
Sena Live
•
23. október
Miðaverð frá
5.990 kr.




Töfrandi Eldborg með Eivöru
Þann 23. október tekur Eivör yfir Eldborg með sínum eintaka hætti og splunkunýtt efni í farteskinu. Framundan er kvöld fullt af krafti, dulúð og tónlist sem lætur engan ósnortinn. Evróputúr Eivarar hefst í Færeyjum og á Íslandi. Þetta verður kvöld sem þú vilt ekki missa af.
Platan Tungl, kemur út 16. október og fylgir eftir plötunni ENN, sem kom út árið 2024.
Á Tungl kafar Eivör enn dýpra í dimman og draumkenndan hljóðheim. Platan fjallar um síbreytilegar hringrásir lífsins og ferðast á milli viðkvæmni og sorgar, ástar og missis, styrks og umbreytinga. Þrjú lög hafa þegar verið gefin út; Healer, Drekafljóð og Verjugarðar.
Nýtt myndband var nýlega frumsýnt við lagið Drekafljóð en það var tekið upp á íslandi og er í leikstjórn Krassasig.
Horfðu á myndbandið hér
Ekki missa af Eivöru í Eldborg þegar hún hefur Evróputúrinn með nýja tónlist úr Tungl í farteskinu!
Það sem Eivör segir um plötuna:
„Tungl fjallar um síbreytilegar hringrásir lífsins. Lögin ferðast á milli augnablika viðkvæmni og sorgar, ástar og missis og þeirra tilfinninga sem móta okkur. Líkt og tunglið sem gaf plötunni nafn sitt er Tungl mildur leiðarvísir í gegnum myrkari kafla lífsins og varpar ljósi á fegurðina, styrkinn og umbreytinguna sem finna má á leiðinni.“
MIÐAVERÐ:
Úrvals: 16.990 (fjólublátt á mynd)
A sæti: 14.990 (rautt á mynd)
B sæti: 11.990 (blátt á mynd)
C sæti: 9.990 (grænt á mynd)
D sæti: 7.990 (gult á mynd)
E sæti: 5.990 (bleikt á mynd)
Sjá mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live
UM EIVÖRU
Eivör er ein sterkasta röddin í norrænu tónlistarsenunni í dag. Hún sameinar gamla tónlistarhefð og nútímalegan hljóðheim á einstakan hátt. Eivör ólst upp í Færeyjum og tónlist hennar mótast af náttúru eyjanna og sterkri sönghefð þjóðarinnar, þar sem tónlist er stór hluti af daglegu lífi.
Hún hefur gefið út 11 plötur sem allar eru undir áhrifum norrænnar þjóðlagahefðar. Tónlist hennar, hrá og fáguð, einkennist af kraftmiklum söng og sterkum takti. Árið 2021 hlaut hún Nordic Council Music verðlaunin fyrir framúrskarandi framlag sitt til tónlistar.
Auk eigin útgáfu hefur Eivör vakið athygli um allan heim fyrir tónlist sem hún hefur samið fyrir kvikmyndir, sjónvarp og tölvuleiki, meðal annars The Last Kingdom og God of War. Þar hefur einstök rödd hennar hjálpað til við að skapa áhrifamikinn og tilfinningaríkan hljóðheim.
Eivör hefur ferðast víða, komið fram í Evrópu, Norður-Ameríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Eftir útgáfu plötunnar ENN árið 2024 hefur hún haldið áfram að stækka aðdáendahóp sinn um allan heim. Tónleikar hennar eru þekktir fyrir mikinn kraft, sterkar tilfinningar og einstaka stemningu.
Tónlist Eivarar er dimm, falleg og áhrifamikil. Blönduð af kvikmyndalegum hljóðum, raftónlist og norrænum áhrifum. Hún byggir á hefðum enn hljómar á sama tíma fersk og nútímaleg. Hún hefur nú samið við Nuclear Blast og nýja tónlistin hennar markar upphaf nýs kafla sem er persónulegri, beinni og enn sterkari.

