Daði Freyr og Sinfó - IA26 Special Event

Harpa

5. nóvember

Sala hefst

30. apríl 2026, 11:00

(eftir 1 viku)

Daði Freyr og Sinfó

  

ALMENN MIÐASALA HEFST 30. APRÍL KL. 10:00
FORSALA SENU LIVE FER FRAM 29. APRÍL KL. 10:00
SKRÁNING Í HANA HÉR

FORSÖLUR FYRIR IA MIÐAHAFA OG ÁSKRIFENDUR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS ERU 28. APRÍL KL. 10:00
10% AFSLÁTTUR FYRIR ALMENNA IA25 MIÐAHAFA OG ÁSKRIFENDUR SÍ
20% AFSLÁTTUR FYRIR PLUS IA25 MIÐAHAFA

Hvernig hljómar synth-popptónlist Daða Freys með klassískum útsetningum Sinfóníuhljómsveitar Íslands?

Svarið við spurningunni fæst þann 5. nóvember í Eldborg, Hörpu þar sem Daði Freyr og Sinfó leiða saman hesta sína á sérstökum tónleikum Iceland Airwaves.

Ekki missa af tækifærinu, það mun eitthvað einstakt eiga sér stað á sviðinu þetta kvöld.

Á tónleikum stígur Daði Freyr í fyrsta sinn á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hér fær tónlist hans nýjan og kraftmikinn búning þar sem sinfónískar útsetningar mæta einkennandi popphljómi hans. Úr verður einstök tónlistarupplifun þar sem þekkt lög fá nýtt líf og áheyrendum gefst sjaldgæft tækifæri til að upplifa tónlist Daða Freys í glæsilegum og víðfeðmum hljómi sinfóníunnar.

Nýjasta afurð Daða Freys Too Much Not Enough kemur út 8. maí n.k. Platan er sú persónulegasta til þessa, byggð á hugmyndinni um hvað sé of mikið og þá hvort að það sé yfir höfuð nóg. Á tónleikunum verða flutt efni af nýju plötunni og að sjálfsögðu einnig eldri slagarar tónlistarmannsins.

Hljómsveitarstjórinn er Daníel Bjarnason, sem hefur nýlega gert garðinn frægan með Rosalía.

Viðburðurinn er hluti af Iceland Airwaves 2026 sem sérstakur viðburður (Special Event). Iceland Airwaves miðahafar fá forgang og afslátt, en tónleikarnir eru opnir öllum.

Með tónleikunum heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands áfram samstarfi sínu við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Áður hefur Sinfó meðal annars tekið þátt í Iceland Airwaves á tónleikum með John Grant, Jóhanni Jóhannssyni, Emilíönu Torrini, Ólafi Arnalds, Ásgeiri Trausta og nú síðast Mugison.

  Sex verðsvæði eru í boði og kosta miðarnir frá 9.990 kr.

EFNISSKRÁ
Tónlist Daða í nýjum útsetningum

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Daníel Bjarnason

ÚTSETJARAR
Tilkynnt fljótlega

VERÐSVÆÐIN:
- Úrvalssvæði: 19.990 kr.    (fjólublátt á mynd)
- Svæði A: 18.990 kr.          (rautt á mynd)
- Svæði B: 16.990 kr.          (blátt á mynd)
- Svæði C: 14.990 kr.          (grænt á mynd)
- Svæði D: 12.990 kr.          (gult á mynd)
- Svæði E:   9.990 kr.          (bleikt á mynd)

Mynd af sal hér

Umsjón: Iceland Airwaves

Um Daða Frey
Daði Freyr er íslenskur söngvari, lagahöfundur og pródúsent sem hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af ástsælustu og sérkennilegustu popplistamönnum landsins. Hann er þekktur fyrir snjallar og húmorískar lagasmíðar, grípandi synth-pop hljóðheim og glettna, ófyrirsjáanlega nálgun sem hefur höfðað til áheyrenda um allan heim.

Daði vakti heimsathygli árið 2020 með laginu Think About Things, sem fór sigurför á netinu á meðan heimsfaraldurinn stóð sem hæst, safnaði yfir 100 milljónum spilana og hlaut lof víða að, meðal annars frá tónlistarfólki og fjölmiðlafólki á borð við P!nk, James Corden og Russell Crowe. Síðan þá hefur hann byggt upp öflugan alþjóðlegan aðdáendahóp með eftirminnilegum tónleikum þar sem samstilltir dansar, leikandi sjónræn framsetning og hlý, sammannleg stemning skapa einstaka upplifun. Hann hefur selt upp tónleikastaði víða um Evrópu og Bandaríkin, komið fram á stórum tónlistarhátíðum og fest sig í sessi sem listamaður sem einfaldlega verður að sjá á sviði.

  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger