Jesus Christ Superstar í flutningi Kórs Keflavíkurkirkju og Kórs Akraneskirkju ásamt Eyþóri Inga og Stebba Jak.

Hljómahöll

21. mars

Miðaverð frá

7.900 kr.

Kór Keflavíkurkirkju og Kór Akraneskirkju ætla í sameiningu að flytja rokksöngleikinn Jesus Christ Superstar eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar í Hljómahöll 21. mars kl. 17. Um er að ræða 100 manna kór. Fjölda einsöngvara innan raða kóranna munu koma fram ásamt hljómsveit og hljóðfæraleikurum. Stjórnendur eru Arnór Vilbergsson organisti í Keflavíkurkirkju og Hilmar Örn Agnarsson organisti í Akraneskirkju. Eyþór Ingi og Stebbi Jak munu syngja Jesú og Júdas. Flestir þekkja rokksöngleikinn en hann segir frá síðustu dögum Jesú, séð að stórum hluta frá sjónarhorni Júdasar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger