© 2026 Tix Miðasala
Listaháskólinn Laugarnesi
•
29. janúar




Beisik Bitch // Nanna Gunnars
Iceland University of the Arts
Graduation Festival 2026
MA Performing Arts
------
Beisik bitch. Hver er hún? Hvernig hegðar hún sér? Hvernig samtöl á hún? Í hvaða umhverfi þrífst hún? Tekur einhver hana alvarlega?
Er hún kannski að rembast eins og rjúpan við staurinn við að vera ekki beisik? Eða er það öfugt, vill hún einmitt vera eins beisik og hægt er til að falla inn í hópinn?
Nanna Gunnars hefur lagst djúpt í að rannsaka hugtakið “beisik bitch” og deilir nú niðurstöðunum í fyrsta sinn með áhorfendum á sviði. Hún kafar ofan í sviðssetningu sjálfsins og setur spurningamerki við þær væntingar sem eru gerðar til kvenna í einstaklingshyggjumiðuðu samfélagi nútímans, jafnvel í jafnréttisparadísinni Íslandi þar sem konum eru allir vegir færir – er það ekki annars?
------
Nanna Gunnars (hún) er leikkona og framleiðandi. Hún útskrifaðist með BA (Hons) í evrópskum leiklistarfræðum frá Rose Bruford College of Theatre and Performance í London árið 2012 og hefur síðan komið víða við, á sviði, í talsetningu og sem viðburðastjórnandi. Nanna er annar helmingur af skapandi stúdíói sem kallast Huldufugl, sem blandar saman leikhúsi og nýjustu tækni. Huldufugl hefur sett upp leiksýningar innan sýndarveruleika; margverðlaunuðu sýninguna Kassinn og Hliðstætt fólk sem var sýnt í Þjóðleikhúsinu. Huldufugl gaf nýlega út fyrstu íslensku kvikmyndina í sýndarveruleika, Fallax.
Nanna stofnaði einnig og stýrði hátíðinni RVK Fringe Festival frá 2018-2022.
Leikkonur: Nanna Gunnars & Tinna Þorvalds-Önnudóttir
Ljósa- og hljóðhönnun: Owen Hindley
Handrit: Nanna Gunnars hafði yfirumsjón með handriti, en það var unnið í samsköpunarferli með Tinnu Þorvalds-Önnudóttur, Bergdísi Júlíu Jóhannsdóttur og Owen Hindley.
Mentor: Álfrún Örnólfsdóttir
Þakkir:
Brogan Davison
Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir
Gígja Sara Björnsson
Hrefna Lind Lárusdóttir
Saga Kjerulf Sigurðardóttir
Sepideh Safyari Chohragh
Steinunn Knúts-Önnudóttir
Tjarnarbíó
GOSH
Nathan.is
Bekkjarsystkini mín í MA náminu: Anastina, Bergdís Júlía, Linda, Nonni og Simon
Beisik bitch vinkonur mínar, samstarfsfólk og fjölskyldumeðlimir fyrir innblástur
Hvenær:
28.01.2026 from 20:00-21:00 – Q&A (á íslensku)
29.01.2026 from 18:00-19:00 (á íslensku)
29.01.2026 from 21:00-22:00 (á ensku)
Hvar:
Stóra Black Box, L223 – Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík.
Inngangur fyrir neðan hús, frá steypta bílastæðinu, hurð næst Sæbraut.
*Verkið fer fram á íslensku.
//
The basic bitch. Who is she? How does she behave? What kind of conversations does she have? What’s her environment like? Does anyone take her seriously?
Is she perhaps desperately, hilariously, absurdly trying not to be basic? Or is that exactly what she wants, to be as basic as possible in order to fit in?
Nanna Gunnars has been investigating the concept “basic bitch” and will share her findings live with the audience. She digs into staging “the self” and questions the expected behaviour of women in a contemporary, Western, individualistic society like Iceland where women are free to behave however they want - aren't they?
------
Bio: Nanna Gunnars (she/her) is a performer and producer. She graduated with BA (Hons) in European Theatre Arts from Rose Bruford College of Theatre and Performance in London 2012 and has since been performing on stage, working as a voiceover artist and an event producer. Nanna is one half of the creative studio Huldufugl, which fuses theatre with new technology. Huldufugl has created performances in VR; the multi-awarded Kassinn (A Box in the Desert) and Parallel People that was performed in the National Theatre. Huldufugl recently released the first Icelandic film in VR, Fallax.
Nanna also founded the RVK Fringe Festival, and was its artistic director 2018-2022.
------
Performers: Nanna Gunnars & Tinna Þorvalds-Önnudóttir
Lighting and sound design: Owen Hindley
Script: Nanna Gunnars supervised the script but it was created through a devising process with Tinna Þorvalds-Önnudóttir, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir and Owen Hindley.
Mentor: Álfrún Örnólfsdóttir
Thanks:
Brogan Davison
Bryndís Ósk Th. Ingvarsdóttir
Gigja Sara Bjornsson
Hrefna Lind Lárusdóttir
Saga Kjerulf Sigurðardóttir
Sepideh Safyari Chohragh
Steinunn Knúts-Önnudóttir
Tjarnarbío
GOSH
Nathan.is
My classmates in the MA programme: Anastina, Bergdís Júlía, Linda, Nonni and Simon
Thank you to my basic bitch friends, colleagues, and family members for inspiration.
When:
28.01.2026 from 20:00-21:00 – Q&A (In Icelandic)
29.01.2026 from 18:00-19:00 (In Icelandic)
29.01.2026 from 21:00-22:00 (in English)
Where:
Big Black Box, L223 – Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík.
Entrance from below the house, from the concrete parking lot, door closest to Sæbraut.
*The performance is in Icelandic.

