© 2025 Tix Miðasala
Fantasía – Vinnustofa Kjarvals
•
7. maí
Miðaverð frá
0 kr.
Fyrsta bókin sem tekin er fyrir á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála er Geir H. Haarde - Ævisaga.
Af því tilefni ætlar Geir að setjast niður með Stefáni Einari á Vinnustofu Kjarvals og ræða áhugaverða kafla í bókinni sem kom út fyrir jólin í fyrra og vakti talsverða athygli.
Í samtalinu verður skyggnst að tjaldabaki, meðal annars þegar Geir horfðist í augu við þann möguleika að ríkissjóður Íslands yrði gjaldþrota haustið 2008.
Þetta er einstakur viðburður sem ekki verður tekinn upp eða sendur út á öldur ljósvakans. Það er því eftir miklu að slægjast að mæta til leiks.
Léttar veitingar verða á tilboðsverði á staðnum.
Að loknum viðburði gefst klúbbfélögum tækifæri á að rölta yfir á Jómfrúnna við Lækjargötu en allir réttir á matseðli auk drykkja verða á 15% afslætti fyrir meðlimi. Nauðsynlegt er að bóka borð fyrirfram með skýringunni „Bókaklúbbur Spursmála“.
Hægt er að panta borð á jomfruin.is