© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
6. nóvember
Sala hefst
2. maí 2025, 10:00
(eftir 3 daga)
ALMENN MIÐASALA HEFST 2. MAÍ KL. 10.00
FORSALA FYRIR IA MIÐAHAFA FER FRAM 30. APRÍL KL. 10.00*
ALMENNIR IA MIÐAHAFAR FÁ 10% AFSLÁTT
IA PLUS MIÐAHAFAR FÁ 20% AFSLÁTT
* Allir IA miðahafar fá tölvupóst eigi síðar en um kl. 9:30 miðvikudaginn 30. apríl, með sérstökum forsöluhlekk sem opnast kl. 10. Miðakaup verða að hafa átt sér stað fyrir miðnætti daginn áður.
Mugison er einn af okkar ástsælustu tónlistarmönnum og hefur samið og gefið út margar af þekktustu perlum síðari ára. Nú stígur hann í fyrsta sinn á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fer ásamt henni í gegnum tónlistarferilinn sem litast af tilfinningum, dýpt, óvæntum beygjum og einstökum hljóðheimi.
Þetta verða einstakir tónleikar þar sem tónlist listamannsins fær nýjan lit í nýjum útsetningum sem gerðar hafa verið sérstaklega fyrir tilefnið. Tónleikar sem verða líklega aldrei endurteknir.
Ekki sleppa þessu einstaka tækifæri, að upplifa fullskipaða Sinfóníuhljómsveit Íslands með um 70 hljóðfæraleikurum og Mugison í miðjunni á Eldborgarsviði Hörpu.
Viðburðurinn er hluti af Iceland Airwaves 2025 sem sérstakur Partner Event. Iceland Airwaves miðahafar fá forgang og afslátt, en tónleikarnir eru opnir öllum.
Með tónleikunum heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands áfram samstarfi sínu við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Áður hefur Sinfó meðal annars tekið þátt í Iceland Airwaves á tónleikum með John Grant, Jóhanni Jóhannssyni, Emilíönu Torrini, Ólafi Arnalds og nú síðast Ásgeiri Trausta.
Sex verðsvæði eru í boði og kosta miðarnir frá 9.990 kr.
EFNISSKRÁ
Tónlist Mugison í nýjum útsetningum
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Bjarni Frímann Bjarnason
ÚTSETJARAR
Þórður Magnússon
Pétur Ben
Rósa Sveinsdóttir
Sigrún Harðardóttir
Úlfur Eldjárn
Þórdís Gerður
VERÐSVÆÐIN:
- Úrvalssvæði: 19.990 ISK (fjólublátt á mynd)
- Svæði 1: 18.990 ISK (rautt á mynd)
- Svæði 2: 16.990 ISK (blátt á mynd)
- Svæði 3: 14.990 ISK (grænt á mynd)
- Svæði 4: 12.990 ISK (gult á mynd)
- Svæði 5: 9.990 ISK (bleikt á mynd)
Mynd af sal hér
Umsjón: Iceland Airwaves
UM ICELAND AIRWAVES PARTNER EVENTS
Iceland Airwaves Partner Events eru viðburðir sem yfirleitt krefjast sérstakra miða en eiga sér stað á meðan og í samstarfi við Iceland Airwaves hátíðina. Allir geta keypt miða á þessa viðburði en miðahafar Iceland Airwaves greiða ávallt lægra miðaverð og/eða hafa forgang að miðasölu (miðahafar finna afsláttartengla í miðastaðfestingum sínum og sérstakur póstur er sendur á alla miðahafa þegar forsölur eiga sér stað). Ávallt má finna upptalningu allra Iceland Airwaves Partner Events og annara sérstakra viðburða tengdum Iceland Airwaves á icelandairwaves.is/special