© 2025 Tix Miðasala
ARG viðburðir
•
14. apríl
Sala hefst
1. apríl 2025, 10:00
(eftir 19 klukkustundir)
Verður þú á Kanarí um páskana? 14. apríl ætlar Pálmi Gunnars að vera með tónleika á Why not Lago og flytja öll sín bestu og þekktustu lög ?
Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og farsælan feril og hann.
Hver man ekki eftir lögum eins og Þitt fyrsta bros, Vegurinn heim og Hvers vegna varstu ekki kyrr? Og allir muna eftir Gleðibankanum, fyrsta framlagi Íslendinga í Eurovision, sem Pálmi flutti ásamt Helgu Möller og Eiríki Haukssyni.
Ásamt því að starfa með Mannakornum, Brunaliðinu, Friðryk, Blúskompaníinu og Póker, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, hefur Pálmi átt glæsilegan sólóferil og unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með söngperlum sem hvert mannsbarn þekkir.
Óhætt er að segja að hér sé um einstakt tækifæri til að hlýða á Pálma flytja öll sín þekktustu lög í mikilli nánd.
Með Pálma á sviðinu verður undrabarnið Þórir Úlfars.
ATH - takmarkað magn miða og aðeins einir tónleikar