© 2025 Tix Miðasala
Gerðarsafn - Listasafn Kópavogs
•
5. apríl
Miðaverð frá
2.500 kr.
Bæjarlistamaður Kópavogs, Kristofer Rodríguez Svönuson, og strengjaleikarar kammerhópsins Caudu Collective standa fyrir tónleikunum Skjól: strengir og skinn í Gerðarsafni þann 5. apríl.
Þá hafa þau einnig fengið til liðs við sig Birgi Stein Theodórsson kontrabassaleikara og Matthías Hemstock slagverksleikara og mun hópurinn leika tónlist eftir flytjendur, sem öll fjallar á einhvern hátt um vatn. Flutt verður bæði skrifuð tónlist og spuni og leikið verður með hið hefðbundna tónleikaform á mörkum tónlistar á myndlistar.
Að þessu sinni skipa Cauda Collective þær Sigrún Harðardóttir á fiðlu, Þóra Margrét Sveinsdóttir á víólu og Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló.