Ungfónía & Háskólakórinn - Gloria

Langholtskirkja

24. - 25. nóvember

Miðaverð frá

2.500 kr.

Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins (Ungfónía) flytja Gloríu eftir franska tónskáldið Poulenc á tvennum tónleikum í Langholtskirkju 24. og 25. nóvember 2024 kl. 20.00. Einsöngvari í verkinu er María Sól Ingólfsdóttir sópran. Auk þess leikur Ingibjörg Linnet trompetkonsert eftir Johann Babtist Neruda og ný Þjóðlagasinfónía verður frumflutt eftir Kjartan Ólafsson tónskáld. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins fagnar 20 ára afmæli sínu um þessar mundir, en hljómsveitin var stofnuð árið 2004. Stjórnandi kórs og hljómsveitar er Gunnsteinn Ólafsson. 

Miðaverð á tónleikana er kr. 3.500 (kr. 2.500 fyrir nemendur og eldri borgara). Hægt er að nálgast miða hjá kór og hljómsveit, á tix.is og við innganginn.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger