© 2024 Tix Miðasala
Bæjarbíó (hjartasvellið)
•
1. - 23. desember
Miðaverð frá
1.200 kr.
Skautasvell í Jólabænum Hafnarfirði frá 15. nóvember til 23. desember 2024
Í nóvember og desember mun Hafnarfjarðarbær í samvinnu við Bæjarbíó starfrækja Hjartasvellið, 200 fermetra skautasvell fyrir ungt fólk á öllum aldri. Svellið var opnað á aðventunni 2021 og hefur aldeilis slegið í gegn hjá unga fólkinu. Hjartasvellið verður í ár, líkt og í fyrra staðsett beint á móti Bæjarbíó fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar. Þessi staðsetning mun tengja mjög skemmtilega saman Jólaþorpið í miðbænum og ljósadýrðina í Hellisgerði. Svo er tilvalið að skella sér á Bókasafn Hafnarfjarðar eftir skautaferðina, ylja sér og glugga í bók.
100% vistvænt og 100% skemmtilegt
Hjartasvellið er 100% vistvænt þar sem hvorki vatn né rafmagn er notað til að frysta það. Svellið er byggt á sérhönnuðum gerviísplötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís sem býður uppá frábæra afþreyingu, upplifun og hreyfingu fyrir alla fjölskylduna. Skautaferðirnar eru þegar komnar í sölu á tix.is og innifalin er leiga á skautum og hjálmi. Best að panta ferðina á tix.is
Hjartasvellið verður opið sem hér segir
Föstudaga frá kl. 16-20
Laugardaga frá kl. 13-18
Sunnudaga frá kl. 13-18
Fyrirkomulagið er einfalt:
Þú pantar þína skautaferð og skauta á hjartasvellid.is og www.tix.is best er að tryggja sér skautaferðina með því að kaupa miða fyrirfram á netinu)
Hver skautaferð er 40 mín og hefst á heila tímanum
Mikilvægt er að mæta tímanlega til að forðast raðir
Hægt er að kaupa allt að átta ferðir á 4.000 kr í sérstökum fjölskyldupakka og reiknast afslátturinn í körfunni sjálfkrafa. Eingöngu er hægt að kaupa fjöldskyldupakkann á tix.is
======================================================================
PRAKTÍST MÁL
VERÐ
Hver skautaferð kostar 1.200 kr og eru skautar og hjálmur innifalið í ferðinni
Sami fjöldskyldupakki og í fyrra 4.000 kr
OPNUNARDAGUR OG FRÁVIK DAGA
Opnum 15. nóvember og lokum á þorláksmessukvöld